Monday, August 25, 2008

Hæhó

Já, þá er vika númer tvö rétt byrjuð. Þessi fyrsta vika er búin að vera ótrúlega skemmtileg. Á fimmtudaginn voru ólympíuleikar haldnir hérna í skólanum. Þá voru krakkarnir sem eru í hóp sem kallast Teambuilders búnir að skipuleggja allan daginn. Það byrjaði á því að okkur var skipt í lið og við vorum sjö í liði. Svo þurfti liðið að fara og finna sér búning og þá höfðu The teambuilders sett eitthvað dót í fötu sem við grömsuðum í og mitt lið ákvað að klippa niður blátt efni sem var í fötunni og nota sem hárbönd og einshvers konar mittisbönd/minipils. Svo var auðvita sett stríðsmálning framan í okkur. Þegar liðin voru komin í búning fórum við öll inn í stóra salinn og þá voru ólympíuleikarnir settir þegar Jonas Stölse kom hlaupandi inn með kyndilinn og kveikti ólympíueldinn. Mjög dramatísk athöfn það. Svo þurftum við að keppa í allskonar þrautum. Það var svona þrautabraut búin til úr dýnum og allskonar dóti sem við þurftum að fara í gegn um, með hárkollu á höfðinu og skjalatösku í hendinni. Svo var ein þrautin einskonar boðhlaup. Það var þannig að fyrir framan okkur voru fjórar fötur, ein innihélt hafragraut, önnur jógúrt, sú þriðja sultu og fjórða fatan var tóm. Svo átti fyrsti maðurinn í liðinu að taka upp með höndunum eins mikinn hafragraut og hann gat og hlaupa með hann braut þar sem bæði þurfti að hoppa yfir og fara undir borða. Svo þegar fyrsti maður var kominn í gegn um brautina átti næsti maður að taka við hafragrautnum sem sá fyrst hélt á og fara sömu leið og svona gekk það koll af kolli og þegar síðasti maður var kominn með hafragrautinn í heimahöfn setti hann hann í tómu fötuna. Svona gekk þetta með jógúrtið og sultuna og þetta var bæði keppni í því að vera fyrstur og mark og líka að ná sem mestu af matnum í tómu fötuna, þannig að hún var vigtuð í lokin. Svo var keppni í því að kasta ósoðnu eggi á milli og í hvert sinn sem maður greip eggið átt maður að færa sig eitt skref aftur á bak, þannig að bilið lengdist alltaf á milli þeirra sem voru að kasta. Svo var líka kappát, og ég fékk að taka þátt í því að borða fyrst 6 flöðeboller, svona ekki ósvipaðar kókosbollum bara minni, og strax á eftir átti að borða sex þurrar kexkökur. Bollurnar voru svo sem ekkert mikið mál enda mjög svo bragðgóðar, en kexið var algjör viðbjóður. Ég þornaði svo í munninum og hálsinum að ég gat varla tuggið. En gaman engu að síður. Svo var margt margt annað.

Á föstudaginn voru svo m.a. viðtöl við kennara, þar sem nemendur fóru og snökkuðu við kennara sína. Svo skemmtilega vildi til að mitt viðtal var kl. 15:50 og reiknaði ég það út að ég gæti þá séð leikinn Ísland-Spánn. En viti menn, öll viðtölin fóru fram inn í kennslustofum og svo óskemmtilega vill til að öll sjónvörp skólans eru inn í kennslustofum. Því ákvað ég að fara á www.ruv.is en viti menn, það voru einhverjir tæknilegir örðuleikar og viðgerðir stóðu yfir. Ég varð því að láta mér það nægja að fylgjast með stigaskorinu á mbl.is og gat séð þar hvað markvert gerðist á hverri mínútu. Og ósköp leið tíminn eitthvað hægt þegar maður horfði bara á tölurnar og beið eftir nýjum. En, minn kæri bróðir tók upp leikinn fyrir mig, eða ég ætla rétt að vona það, svo ég get horft á hann um jólin :)

Á laugardeginum vöknuðum við svo rúmlega sjö svona eins og venjulega því við fórum á stöndina. Það tók svona 20-30 mínútur að keyra þangað og svo löbbuðum við smá spöl. Við sáum t.d. vita og hjá vitanum standa nokkur hús en þau sjást ekki lengur af því að það hefur fokið svo mikill sandur á þau, eða ég skildi það þannig alla vega. Svo borðuðum við hádegismat á stöndinni, og ég fékk óvæntan gest í matinn minn, mjög svo bústinn og pattaralegan geitung. Geitungar eru alls staðar. Þessum tiltekna geitungi leist svo ljómandi vel á kartöflusalatið sem ég hafði á disknum mínum að hann ákvað að taka sér bólfestu þar og rölti í mestu makindum fram og aftur yfir það þar til hann sat fastur á einum kartöflubitanum. Sama hvað ég gerði, hann fór ekki af disknum, svo ég greip til þess ráðs að taka kartöflubitann af disknum og leifa geitungnum bara að hafa hann út af fyrir sig. Ég borðaði ekki karftöflusalatið.
Við fórum svo í reiptog og sumir fóru og svömluðu í sjónum. Við komum heim um kl. 14:00 og svo var partý klukkan 18:00. Það var alveg heljarinnar stuð og það sem mér fannst hvað furðulegast var það að það var bar á staðnum, inn í skólanum, og ekki nóg með það heldur voru það kennararnir sem voru að selja áfengið, íþróttakennarar í þokkabót.

Svo vöknuðu 3/4 af íslendingunum hressir í morguns-árið til þess að fylgjast með handboltalandsliðinu og svo verðlaunaafhendingunni. Sunnudagurinn var svo bara mjög rólegur.

Í dag var svona fyrsti venjulegi kennsludagurinn. Við byrjuðum á grunnþjálfun kl. 8:00 og þar var nú heldur betur tekið á því. Svo átti ég að fara í Powersport kl. 10:00 en að þessu sinni vorum við í tíma með erobik krökkunum og tíminn fór allur í teygjuæfingar og slökun eins þversagnarkennt og það kann að hljóma þegar talað er um Powersport. En þetta var mjög þægilegt og maður var allur ferskur og endurnærður eftir tímann. Svo var söngstund eftir hádegi og síðan vorum við í svona Teamwork þ.e.a.s. liðavinnu. Okkur var þá skipt í lið og áttum að leysa hinar ýmsu þrautir.
Svo núna í kvöld var svona stelpukvöld þar sem við stelpurnar hittumst út á basecamp svæðinu, en þar er svona staður fyrir varðeld og þar eru líka tveir stórir klifurstaurar, annar er 8 m og hinn tæpir 16 m held ég. Ég prófaði að príla upp þann minni en ég hafði ekki alveg taugar í að standa upprétt á honum, lét það nægja að hanga í honum efst. En þetta var ótrúlega gaman og pottþétt ekki í síðasta skipti sem égklifra þarna upp. Hver veit nema ég prófi þann stærri líka :)





En já, þá held ég sé búin að segja svona í grófum dráttum frá þessum undanförnum dögum.
Ég bið bara að heilsa ykkur

Sigurlaug

4 comments:

Anonymous said...

Very fine......

Unknown said...

Vel gert yndisfríð, lætur ekki neitt stoppa þig, tæknilegir örðugleikar, geitungar, íllkleifir staurar, borðar allar svona hindranir í morgunmat

Unknown said...

Ég borða nú bara súrmjólk og seríos í morgunmat. Gangi þér vel áfram og góðar stundir. Það biðja allir að heilsa.

Anonymous said...

Gaman að heyra hvað það er skemmtilegt hjá þér!!! Ég á eftir að kíkja reglulega inn á þessa síðu.
Kv. Katrín Stefanía