Á föstudaginn voru svo m.a. viðtöl við kennara, þar sem nemendur fóru og snökkuðu við kennara sína. Svo skemmtilega vildi til að mitt viðtal var kl. 15:50 og reiknaði ég það út að ég gæti þá séð leikinn Ísland-Spánn. En viti menn, öll viðtölin fóru fram inn í kennslustofum og svo óskemmtilega vill til að öll sjónvörp skólans eru inn í kennslustofum. Því ákvað ég að fara á www.ruv.is en viti menn, það voru einhverjir tæknilegir örðuleikar og viðgerðir stóðu yfir. Ég varð því að láta mér það nægja að fylgjast með stigaskorinu á mbl.is og gat séð þar hvað markvert gerðist á hverri mínútu. Og ósköp leið tíminn eitthvað hægt þegar maður horfði bara á tölurnar og bei
Á laugardeginum vöknuðum við svo rúmlega sjö svona eins og venjulega því við fórum á stöndina. Það tók svona 20-30 mínútur að keyra þangað og svo löbbuðum við smá spöl. Við sáum t.d. vita og hjá vitanum standa nokkur hús en þau sjást ekki lengur af því að það hefur fokið svo mikill sandur á þau, eða ég skildi það þannig alla vega. Svo borðuðum við hádegismat á stöndinni, og ég fékk óvæntan gest í matinn minn, mjög svo bústinn og pattaralegan geitung. Geitungar eru alls staðar. Þessum tiltekna geitungi leist svo ljómandi vel á kartöflusalatið sem ég hafði á disknum mínum að hann ákvað að taka sér bólfestu þar og rölti í mestu makindum fram og aftur yfir það þar til hann sat fastur á einum kartöflubitanum. Sama hvað ég gerði, hann fór ekki af disknum, svo ég greip til þess ráðs að
Við fórum svo í reiptog og sumir fóru og svömluðu í sjónum. Við komum heim um kl. 14:00 og svo var partý klukkan 18:00. Það var alveg heljarinnar stuð og það sem mér fannst hvað furðulegast var það að það var bar á staðnum, inn í skólanum, og ekki nóg með það heldur voru það kennararnir sem voru að selja áfengið, íþróttakennarar í þokkabót.
Svo vöknuðu 3/4 af íslendingunum hressir í morguns-árið til þess að fylgjast með handboltalandsliðinu og svo verðlaunaafhendingunni. Sunnudagurinn var svo bara mjög rólegur.
Í dag var svona fyrsti venjulegi kennsludagurinn. Við byrjuðum á grunnþjálfun kl. 8:00 og þar var nú heldur betur tekið á því. Svo átti ég að fara í Powersport kl. 10:00 en að þessu sinni vorum við í tíma með erobik krökkunum og tíminn fór allur í teygjuæfingar og slökun eins þversagnarkennt og það kann að hljóma þegar talað er um Powersport. En þetta var mjög þægilegt og maður var allur ferskur og endurnærður eftir tímann. Svo var söngstund eftir hádegi og síðan vorum við í svona Team
Svo núna í kvöld var svona stelpukvöld þar sem við stelpurnar hittumst út á basecamp svæðinu, en þar er svona staður fyrir varðeld og þar eru líka tveir stórir klifurstaurar, annar er 8 m og hinn tæpir 16 m held ég. Ég prófaði að príla upp þann minni en ég hafði ekki alveg taugar í að standa upprétt á honum, lét það nægja að hanga í honum efst. En þetta var ótrúlega gaman og pottþétt ekki í síðasta skipti sem égklifra þarna upp. Hver veit nema ég prófi þann stærri líka :)
En já, þá held ég sé búin að segja svona í grófum dráttum frá þessum undanförnum dögum.
Ég bið bara að heilsa ykkur
Sigurlaug
4 comments:
Very fine......
Vel gert yndisfríð, lætur ekki neitt stoppa þig, tæknilegir örðugleikar, geitungar, íllkleifir staurar, borðar allar svona hindranir í morgunmat
Ég borða nú bara súrmjólk og seríos í morgunmat. Gangi þér vel áfram og góðar stundir. Það biðja allir að heilsa.
Gaman að heyra hvað það er skemmtilegt hjá þér!!! Ég á eftir að kíkja reglulega inn á þessa síðu.
Kv. Katrín Stefanía
Post a Comment