Tuesday, August 19, 2008

Strengir

Hæhæ
Ég er í smá pásu núna, búin að borða kvöldmat og er að bíða eftir því að fara fram í kvöldkaffi og söngstund, við erum alltaf syngjandi :)
Ég er með svo mikla strengi og við erum ekki einu sinni byrjuð á mesta púlinu. Það er samt búið að vera svo gaman! Ég er sko núna að fá það endurgreitt að ég skildi aldrei fara í leikskóla. Á sunnudagskvöldið þegar við vorum búin að borða mjög svo ljúffengan mat fórum við í stóra íþróttasalinn og vorum í allskonar leikjum, svona ísbrjótum. Ég er alveg búin að læra þó nokkur nöfn. Það eru alveg nokkrir útlendingar svona eins og ég. Við erum fjórar stelpur frá Íslandi, Brynja, Elín og Hrefna, þannig að ég get allavega talað íslensku svona öðru hverju. Svo eru að ég held tveir strákar frá Ungverjalandi, tveir frá Lettlandi, einn frá Bandaríkjunum, svo er Lori herbergisfélaginn minn frá Ástralíu og svo er von á einni stelpu frá Thailandi að ég held og tveim strákum frá Oman. Svo verðum við útlendingarnir í svona International tímum, að vísu eru Brynja og Hrefna með dönunum og ég og Elín getum fengið að skipta ef við viljum. Ég held bara að ég muni ekki skilja nógu mikið því í þessum tímum eru að koma fyrirlesarar að tala við okkur og þess háttar en í International tímunum t.d fórum við og skoðum í kring um Brönderslev og gerum eitthvað svona skemmtilegt.

Ég er búin að ákveða að láta fólk bara kalla mig Hönnu, en íslensku stelpurnar kalla mig auðvita bara Sigurlaugu. Til að byrja með kynnti ég mig alltaf sem Sigurlaugu en það áttu allir í svo miklum erfiðleikum með að segja það þannig að ég gafst bara upp og segið þeim núna bara að kalla mig Hönnu. Það er mun auðveldara að bera það fram :)

Í gær var okkur skipt í lið og hvert lið átti að búa til leik/keppni og síðan kepptu öll liðin í þessum leikjum. Það var gjjeeðveikt gaman og liðið mitt lenti í 3. sæti af 10 liðum :)

Svo í dag voru kennararnir að hjálpa okkur með að velja íþróttagreinar sem við viljum vera í núna á fyrri önninni, ég verð í fótbolta, teambold og powersport. Á morgun munum við svo fara í kynningar á þessu öllu og ég hlakka ótrúlega mikið til :)

Að lokum ætla ég að setja nokkrar myndir hérna

Njótið vel

Sigurlaug
Strandblaksvöllurinn


Eða nei, myndirnar verða bara tvær að þessu sinni...það er frekar glatað að setja myndir hérna inn á þannig að ég held að ég setji þær bara á myspace-ið mitt: www.myspace.com/sigurlaug1988

2 comments:

Anonymous said...

Skoo mér fannst þú segja sigurlaug-fannar.. En ég er þá allavega búin að finna síðuna núna. Best að fara þá að lesa.. Fór bara beint í að kommenta. Sá eina mynd af blaksandi og mér líður furðulega. Svona ómægad ég hlakka til að fara til DK! Svo kannski var myndin ekki þaðan, en mér fannst lýsingin þannig..

Anonymous said...

Nei sko! þetta er alveg frábært! Fólk frá Oman líka, það er svalt! En já, ætla nú ekki að missa mig alveg hérna. En þetta er alveg meiriháttar. Mér finnst samt að þú mættir allavega setja myndir hérna líka stundum. Þúst bara nokkrar :) En já ég á vist að vera búin að loka. Er í vinnunni.. Skemmtu þér áfram rosalega vel! :) Måske vi ses i Danmark :)