Á sunnudaginn fórum við nefnilega til Chamonix í Frakklandi og það var sko heldur betur stuð. Þetta var reyndar mjög langt ferðalag, tæp sólarhringsferð með rútu. Við lögðum af stað um 10:00 á sunnudagsmorguninn eftir að við vorum búin að útbúa nesti fyrir daginn og svona. Svo var nú gert ýmislegt til að gera ferðina skemmtilegri, farið í spurningakeppni, bingó/bangó og svo var líka svona leikur sem var þannig að við áttum að draga nafn úr poka og við áttum að vera svona leynivinur fyrir viðkomandi. Það var annar strákurinn frá Oman sem dró mig, hann Ali. Ég veit ekki alveg hvort að hann skildi leikinn alveg rétt, hann allaveg lét mig vita mjög fljótlega að hann hefði dregið mig. Hann reyndar gaf mér reyndar gjöf, fyrst sendi hann mér miða þar sem hann hafði skrifað að hann óskaði mér góðrar ferða til Frakklands og svo seinna fékk ég samanvöðlaðan miða og þegar ég opnaði hann kom í ljós ein frönsk kartafla og á miðanum stóð It's small, but important.
En ferðin sjálf gekk mjög greiðlega og við vorum komin á áfangastað á mánudagsmorgninum svona um 9:00 minnir mig. Og ég verð að segja að þegarvið fórum að sjá fjöll og einhverja svona tilbreytingu í landslaginu þá fór mér að líða svo þægilega og það var svo notalegt að vera umkringd fjöllum þennan tíma. En allavega, þegar við komum að blokkunum þar sem íbúðirnar voru fengum við lykla að íbúðunum okkar og við Mathilda, Tanja og Jeanett fórum og skoðuðum okkar íbúð. Við vorum sammála um að við hefðum verið heppnar með íbúð því við vissum að íbúðirnar voru mjög misjafnar. Okkur var líka úthlutaður matarpeningur sem átti að endast ferðina. Við fórum því og versluðum í matinn.
Á þriðjudeginum fór ég í fjallgöngu. Það var mjög gott veður og mjög góð ferð myndi ég segja. Við fórum fyrst með svona stólalyftu upp að einhverju húsi og röltum svo upp að öðru húsi þar sem var alveg frábært útsýni. Þegar við komum aftur niður fórum við svo að tala um það sem við ætluðum að gera daginn eftir. Ég var í hópi 1 og átti sá hópur að fara í mountainbiking (fjallahjólun) og klifur og þurfti því að skipta hópnum í tvennt. Anders kennari talaði um að hópurinn sem byrjaði að hjóla yrði svona fast group og hann bað um 10 sjálfboðaliða í þann hóp. Auðvita réttu flestir strákarnir upp hendi en þeir voru ekki nema sjö, tvær norskar stelpur réttu upp hendi fyrir rest en þá vantaði einn enn og vitið menn, Anders sagði að ég gæti verið í þessum hóp þar sem ég væri frá Íslandi. Þannig að ég, sem hef aldrei farið í mountainbiking nema upp veginn í kirkjugarðinn heima, var í hraðari hópnum.
Svo á miðvikudeginum dressaði ég mig upp í hjólagallann, tilbúin að takast á við brekkurnar. Þetta voru að ég held 23 km sem við hjóluðum. Og auðvita kom rigning þegar við vorum að leggja af stað þannig að stígurinn sem við hjóluðum eftir var allur í pollum og svona, þannig að allir voru mjög skrautlegir að ferðinni lokinni. En þetta gekk alveg nokkuð hrakfallalaust fyrir sig, reyndar fór keðjan af hjólinu mínu einu sinni en ég náði nú að redda því. Mér fannst samt eins og Peter kennara hefði komið það á óvart að ég hefði getað lagað þetta sjálf og ég heyrði bara að hann talaði eitthvað um Icelandic girlpower, haha mér fannst það fyndið.
Þegar hjólatúrnum var lokið var svo komið að klifrinu. Og þar var ég sko í essinu mínu. Við fengum svona klifurútbúnað, hjálm, skó og svona bandabrók einhverja þar sem öryggislínan var fest. Þetta var ca. 20 metra hár klettur sem við klifruðum á og ég fór upp á topp, tvisvar! :) Mig langar aftur, þetta var svo gaman. Þarna gat ég sko látið klifurköttinn sem hefur legið í dvala svo lengi fá útrás.
Á fimmtudeginum fór hópurinn minn í jöklaleiðangur. Við fengum alveg sérstakan útbúnað fyrir ferðina, hjálm, skó, mannbrodda (sko svona fullorðins mannbrodda), bandabrókina frábæru og ísöxi. Við fórum svo með lest upp á einhvern dal þar sem skriðjökull skríður fram. Til að komast að jöklinum þurftum við að fara niður stiga sem höfðu verið festir á klettaveggina hjá jöklinum. Og þessir stigar eru nú ekki fyrir hvern sem er, nánast lóðréttir og ca. 50 metra langir. En það var bara gaman að klifra þarna niður. Svo löbbuðum við á jökulinn og settum á okkur mannbroddana og fórum að æfa okkur í að nota þá, ganga í hliðarhalla og upp og niður brekkur og svona.
Á föstudeginum fórum við svo í Rafting. Það var frábært. Við vorum líka svona heppin því að það var búin að vera rigning svo það var aðeins meira í ánni en hafði verið undanfarna daga. Og það þýddi auðvita bara meira fjör. Við fengum síðan svona blautbúninga, einn ermalausan samfesting, jakka, skó og svo björgunarvesti yfir það og hjálm. Og þegar maður var svo kominn með árina í hönd var maður heldur betur orðinn vígalegur. Svo keyrðum við smá spöl og svo var bara að leggja í hann. Við fórum fyrst bara út í ánna án þess að vera á bát, svona til finna hvernig vatnið væri. Það var svona 8-10°C sögðu leiðsögumennirnir. Kalt og gott.
En svo var bara að koma sér í bát og leggja í hann. Þetta var svo gaman, adrenalínið alveg í hámarki.
Um kvöldið var svo partý, við fórum á einhvern bar þarna í bænum og dönsuðum fram eftir kvöldi, eða ég gerði það allavega. Svo vöknuðu allir hinir hressustu í gærmorgun til að laga til í íbúðunum og svo lögðum við af stað heim á leið um kl.10:00.
Ferðin gekk mjög vel. Ég náði að kynna Elínu fyrir Helga & hljóðfæraleikurunum í iPodinm mínum og allt. En allavega, við rendum í hlað hérna kl. 7 í morgun. Ég náði að sofa alveg helling í rútunni þannig að ég var ekkert svo þreytt, ég held að núna séu u.þ.b. allir steinsofandi.
En ég sit hér og skrifa fyrir ykkur blogg. Ég er líka að bíða eftir að batteríin fyrir myndavélina mína verði fullhlaðin. Eða nei, ég þarf ekki að bíða, ég set bara kortið út myndavélinni í tölvuna og fer að skoða myndirnar. Þá get ég líka sett nokkrar myndir hérna inn. Ok, ég ætla núna að fara að skoða myndirnar, kem aftur...
...jæja, búin að skoða allar myndirnar sem ég tók. Ég set nokkrar hérna inn.
Mont Blanc er tindurinn lengst til vinstri
Hafið það bara gott um alla tíð og tíma
Bið að heilsa í dalinn
Sigurlaug
5 comments:
Gott að þetta hefur allt gengið vel. Það biðja allir að heilsa.
Þvílík ofurmennska, haha, bandabrók, hérna í skveitinni köllum við þetta sigbelti en bandabrók er klárlega gott og gilt orð.
Að sjálfsögðu reddaðir þú hjólinu sjálf, engin hattastandur þarna á ferð heldur, rosalega er ég ánægður með þig.
Þú stendur þig eins og hetja gullið mitt og frábært að sjá að þú hreptir gott veður og góða ferð.
Aðeins 11 dagar :*
Hlakka helling velling til.
hehehe... bandabrók;) Eins og Fannar sagði þá er orðið sigbelti;) En vá þetta er svo næs klettur sem þið voruð að síga! Aw, mig langar í svona mega klett, vorum nefnilega alltaf bara með krakkana í 5 metra klettum í sumar sem eru ekkert alltof skemmtilegir sko;)
Hehe, icelandic girlpower;)
Vá samt hvað þessi ferð hefur verið geðveikt skemmtileg,ég öfundaði þig svoooo þegar ég las bloggið og skoðaði myndirnar, og geri víst enn.
Hlakka til næsta bloggs:)
Slaugen!
æðislegt að sjá hvað það er mikið grín og mikið gaman hjá þér hahahahahahaha
ég saknaði þín í dag þegar ég var á leiðinni suður og mig langaði í hollí hú leikinn..en var umkringd mér eldra fólki sem ekki hafði áhuga.
og svo saknaði ég þín líka um daginn þegar ég var að taka til og hlusta á diskinn með kristjönu arngríms...ég var í alvörunni ekki búin að fatta að þú hefðir laumað svarfdælskum öfgasöng þar inn...
Við balla erum að spá í hvort við megum heimsækja þig í nóvember...
okkur til andlegrar upplyftingar.
nú get ég kommentað hjá þér á hverjum degi því tölvan hennar föðursystur minnar virkar ólíkt ræksninu heima.
Jæja allt í lagi, sigbelti :) Já og Fannar, á morgun getum við sagt að það séu 10 dagar! Það er ekki neitt :D
Já Kolfinna þetta var ótrúlega flottur klettur sem við vorum að príla í, mér fannst klifrið eiginlega skemmtilegast af þessu, en raftingið var reyndar líka geggjað...æj þetta var allt frábært :)
Og ó Arnhildur, hér er alltaf mikið grín og mikið gaman hahahaha :) Sakna hollí hú mikið að ég tali nú ekki um hollí bollí hú en ég sakna þín mun meira og ykkar allra. Og það er sko ekkert vandamál að taka á móti gestum hérna, það vill meira að segja svo skemmtilega til að báðar stelpurnar sem eru með mér í herbergi eiga kærasta hérna í skólanum þannig að ég gæti bara rekið þær yfir í þeirra herbergi og haft herbergið út af fyrir mig, me ð einmitt tvö auð rúm :)
Post a Comment