Já, það eru alveg að koma göngur. Gangnamenn trítla upp á fjöll, innan um bláar berjaþúfur og hóa á kindur og stöku steina. Þvílík dásemd. Enn, á meðan þessu fer fram verð ég víðsfjarri, alveg eins og í síðustu göngum. Ég verð reyndar mun meira víðsfjarri heldur en ég er nú því að næsta sunnudag erum við að fara til Frakklands. Við förum með rútu alla leið og er áætlað að ferðin taki u.þ.b. sólarhring þannig að við ættum að vera komin til Frakklands, nánar til tekið til Chamonix um klukkan 10:00 á mánudagsmorguninn. Þetta verður örugglega frábær ferð, við förum í riverrafting og eitthvað svona klifur og hjólatúra og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta verður í fyrsta skiptið í langan tíma sem ég verð umkringd fjöllum, ágætis tilbreyting það. Þessi fjöll verða þó talsvert hærri en ég á að venjast, enda er Chamonix við fjallsrætur Mont Blanc sem er 4807 m hátt. En ég mun segja ykkur frá þessu öllu saman þegar ég kem aftur hérna í skólann sem verður þá að ég held 13. eða 14. september.
En núna þessa viku er bara búin að vera svona venjuleg stundaskrá í gangi, ég fer í þau fög sem ég valdi mér, fótbolta, teambold og powersport. Já og vitiði hvað. Á fimmtudaginn var international class og við fórum í tölvustofuna og vorum að læra dönsku. Og í þessum international tímum eru eins og ég hef sagt áður krakkar frá Lettlandi og Ungverjalandi sem kunna auðvita mjög takmarkaða dönsku nema einhver blótsyrði og svona sem þeim hefur verið kennt, sérstaklega er vinsæl setningin „Hvad fanden laver du man?“ Þannig í þessum tíma vorum við að læra Jeg hedder Sigurlaug og jeg er tyve år gammel og eitthvað svona skemmtilegt. Svo eftir það fórum við í hjólatúr hérna um bæinn og fengum hjól lánuð héðan frá skólanum. Og þetta voru svona fjallahjól með einhverjum þeim óþægilegustu hnökkum sem um getur. Og ég var bara í venjulegum buxum. Skemmst er frá því að segja að ég gat varla setið restina af deginum og svo skemmtilega vildi til að daginn eftir var tveggja tíma powersport og hvað haldiði að hafi verið tekið fyrir í þeim tíma? Jú mikið rétt, hjólreiðar! En ég er núna búin að fjárfesta í svona hjólabuxum þannig að þegar við förum til Frakklands ætti ég ekki að lenda í þessu.
Núna um helgina er svo búinn að vera svona markaður í gangi hérna í Brønderslev. Þá fjölgar íbúum bæjarins um helming. Á þessum markaði er fullt af svona sölutjöldum, þar sem hægt var að kaupa allskonar hluti, fullt af svona nammi- og ísbásum og margt fleira. Þessa helgi hafði ég mottóið „Einn ís á dag kemur heilsunni í lag“ af leiðarljósi. Það var líka einhverskonar hestamarkaður þarna held ég, það var allavega fullt af hestum þarna, allskonar hestum, stórum og litlum J og vá hvað þeir voru sætir. Þessir póníhestar eru svona álíka háir og kálfar. Músímúsímús.
Núna rétt í þessu var Elín að koma inn í herbergið með fullan kassa af súkkulaðirúsínum sem foreldrar hennar sendu henni, nammi namm. Og talandi um íslenskt nammi, ég kláraði ópalbirgðirnar mínar um helgina.
Núna eftir hálftíma er söngstund. Þá fara allir nemendurnir í fyrirlestrarsalinn og syngja. Við erum meira að segja öll búin að fá okkar eigin söngbækur þannig að ég get haldið áfram að syngja danska söngva þegar ég kem heim. Það eru samt alveg líka íslensk lög í þessari söngbók, nema það er búið að þýða alla textana yfir á dönsku, nema textann við íslenska þjóðsönginn. Til dæmist er búið að þýða Litlu fluguna og heitir lagið núna Bækken løber let på slebne småsten, Sprengisandur heitir Rid nu, rid nu, rask henover sandet og Maístjarnan var þýdd Å så let er dit fodtrin. Við höfum nú samt ekki sungið þessi lög ennþá í söngstund, vonandi kemur samt að því J
En ég ætla að fara að hita upp raddböndin, það verður sko tekið á því í söngstund
Við heyrumst síðar og ég bið að heilsa
Sigurlaug
6 comments:
Ég get ekki að því gert en nafnið á þessum bæ, Brönderslev, er alltaf jafn óaðlaðandi. En góða skemmtun áfram bara.
Þetta hljómar ótrúlega skemmtilega hjá þér kélli mín... :)
Sjett hvað þú verður helmössuð þegar þú kemur aftur á klakann ;)
Hafðu það gott, hlakka til að lesa næsta blogg =o)
Jess loksins get ég kommentað! :) en þetta hljómar allt saman mjög skemmtilegt og ég hlakka til að fylgjast með þér ;)
oh nafnið kemur auðvitað ekki...en þetta var sem sagt Snæfríður sem var að kommenta núna rétt áðan :Þ
Vid sungum rid nu rid nu um daginn. Tad var gaman :)
yeyj, loksins get ég kommentað:)
það er svo gaman að lesa bloggið þitt, hlakka til að lesa meira:) og vonandi ertu að skemmta þér stórkostlega núna!
Post a Comment