Thursday, September 25, 2008

...og hann er kominn í loftið!

Já, Fannar er núna um borð í flugvél á leiðinni til Reykjavíkur, svo fer hann til Keflavíkur með rútu, flýgur þaðan til Kaupmannahafnar og fer þaðan til Brönderslev með lest og verður hér ef allt gengur upp kl. 5:45 í fyrramálið. Ég hlakka svo ótrúlega mikið til, ég geri eiginlega ekki annað en að líta á klukkuna. Ég ákvað að bloggar núna bara svona til að gera eitthvað, láta tímann líða.

Nú þarf ég að hugsa hvað hefur gerst síðan síðast þegar ég skrifaði....humm...það var hérna eitt kvöldið að hann Nicolas vinur minn, sem hefur mjög gaman af því að baka, gerði tvær pönnukökukökur. Svo heppilega vill til að hann Nicolas hefur maga á við músarindil sem er mjög heppilegt fyrir mig því hann getur ekki torgað öllu sem hann býr til. Af minni einskæru góðmennsku aðstoða ég hann því við að hesthúsa því sem hann býr til, en ég er reyndar ekki sú eina. Það er mikið af góðhjörtuðu fólki hérna :) En pönnukökukökurnar voru svooo góðar. Hann bjó fyrst til slatta af pönnukökum. Því næst útbjó hann allskonar gúmmelaði til að segja í kökuna, hann þeytti rjóma og bjó til krem og annað krem og svo átti hann jarðaberjasultu og banana og ég veit ekki hvað og hvað. Síðan Staflaði hann pönnukökunum með mismunandi gúmmelaði á milli og til urðu tvær dýrindis pönnukökukökur. Þær voru ekki lengi að hverfa, nammi namm.




Í gærmorgun var ég svo í powersport og að þessu sinni var powercup í mountainbiking (fjallahjólun). Það eru auðvita engin fjöll hérna en það er svona smá hringur hérna í kring um skólann sem við notuðum. Þá hjólar maður á svona mjóum stígum upp og niður brekkur sem auðvita eru búnar til af mönnum og svo hjólar maður á milli trjáa og svona. En það var sem sagt powercup, hver væri fljótastur að hjóla hringinn. Fyrst hjóluðu allir einn hring, út af fyrir sig og það var tekinn tími. Af fimm stelpum var ég með þriðja besta tímann og komst því í A-úrslit, og svo þegar við kepptum í A-úrslitunum fórum við allar af stað á sama tíma. Ég var alltaf rétt á eftir stelpunni í öðru sæti, en hvað gerist svo þegar brautin er rétt hálfnuð? Jú, keðjan fer af hjólinu mínu. Svekkelsi.

Svo í dag fórum við international nemendurnir í heimsókn í annan lýðháskóla. Hann er í bæ sem heitir Vrå og er bara svona 10 km héðan. Í þessum skóla geta krakkarnir valið um nokkrar brautir eins og t.d. ljósmyndun og textíl og hönnun. Þegar ég vissi að ég væri að fara í lýðháskóla í Vrå mundi ég eftir að Tinna sem var með mér á vistinni á Akureyri var einmitt á leiðinni í þann skóla. Svo í dag hitti ég Tinnu :) Fyrst borðuðu allir nemendurnir saman í skólanum og svo voru nokkrir nemendur frá Vrå sem sýndu okkur skólann og Tinna var leiðsögumaðurinn okkar Elínar.


Ég og Tinna

Núna eru 11 tímar þar til Fannar verður hérna á lestarstöðinni.

Ég ætla að setja inn nokkrar myndir...

Núna eru 10 tímar og 45 mín þar til Fannar verður hérna á lestarstöðinni


Jæja, við heyrumst bara síðar, hafiði það sem best

Kys og kram

Sigurlaug

6 comments:

Unknown said...

Allt í lagi blogg, græðgishlunkurinn þinn. Gott að allt gengur vel. Svo biðja allir að heilsa, en ekkert kram. Hvað sem það nú er.

Anonymous said...

hæhæ...
eins og þú veist þá er ég búin að koma oft hingað og lesa.
gott að þú skemmtir þér vel þarna.
gaman að heyra í þér í gær :)
svo eru einungis 42 dagar í að við komum og þá skemmtiru þér ennþá betur :D

Baldvina
p.s. sjáðu, mér tókst að klára komment!

Anonymous said...

Skemmtið ykkur vel og njótið tímans saman :) alltaf gaman að lesa færslurnar þínar :Þ

Kv. Snæfríður

Sigurlaug said...

Já sömuleiðis Baldvina, það var rosalega gaman að heyra í þér :) og við munum sko heldur betur skemmta okkur þegar þið komið!
Takk Snæfríður :D Alltaf gaman að sjá að einhverjir lesa bloggið manns :)

Anonymous said...

hehe... ég fann hitt kommentið þitt baldvina;D
vonandi skemmtið þið turtildúfurnar ykkur vel saman:)

Anonymous said...

Hæ hæ takk fyrir síðast :)Fannst ótrúlega gaman að fá ykkur í heimsókn!
Vona að þið Fannar hafi átt góðan tíma saman.
kv. Tinna Rut