Ég er svo södd, ég get varla hugsað um annað en hvað ég er södd. Núna áðan vorum ég og Nicolas að gera okkur svona ristuð hafragrjón og borða ásamt jógúrti með peru- og bananbragði. Það var svo gott að ég át yfir mig af því. Ég skammtaði Nicolas líka of mikið þannig að ég dró hann að landi, ekkert mál fyrir Jón Pál. Svo korteri seinna var kvöldmatur. Svo núna stend ég á blístir, eða ligg á meltunni réttara sagt, ég get eiginlega varla staðið.
En þessir síðustu dagar eru bara búnir að vera svona hefðbundnir, þetta gengur svona sinn vanagang. Í international tímanum á miðvikudaginn var ég að halda kynningu um sjálfa mig, það gekk bara alveg ljómandi vel. Ég heillaði alla upp úr skónum með því að sýna myndir úr Svarfaðardalnum og frá Íslandi. Svo í international tímanum á fimmtudeginum fórum við á litlu skólarútunni í einhvern skóg hérna ekki langt frá og vorum að tína sveppi. Við sáum líka einhvern svona náttúru-leikskóla sem er þarna í skóginum. Þar er bara búið að gera svona rólur og vegasölt og litla kofa úr trám, nokkuð flott. Og þetta er víst leikskóli sem ríka fólkið sendir börnin sín í.
En sveppatínslan gekk nú svo sem ekkert svo vel, ég myndi segja að hápunktinum hafi verið náð þegar Elín kom auga á lítinn frosk sem var á stígnum. Að sjálfsögðu snöruðum við froskinum upp í sveppafötuna, sem var að vísu tóm og Elín skírði hann því fallega nafni Sigmundur Laxdal. Sigmundur yfirgaf okkur reyndar eftir ca. 10 mín og hélt einn síns liðs á vit ævintýranna.
Á föstudaginn vaknaði ég með smá kvef og hugsaði að ég yrði nú að taka því rólega svo ég yrði nú hress þegar Fannar kæmi í heimsókn. En þannig er nú það að á föstudögum erum við í íþróttum megnið af deginum. Dagurinn byrjar á grunnþjálfun kl. 8 og að þessu sinni vorum við í allskonar boltaleikjum þannig að ég gat nú eiginlega ekki tekið því rólega. Svo var teambold kl. 10:00 og þá fórum við í badminton og svo eftir mat var powersport og að þessu sinni var powercup í sundi þannig að við þurftum að synda 1 km sem ég gerði á góðum 28 mínútum....takk takk takk vélbyssutakk :) En já, þennan dag ætlaði ég sem sagt að taka því rólega, gekk eiginlega ekki alveg, og svo var það nú alveg punkturinn yfir i-ið þegar Hans kennari bað mig um að taka þátt í handboltaleik um kvöldið og ég átti að spila með international-liðinu. Ég gat að sjálfsögðu ekki brugðist honum svo ég sló til og tók þátt. Þetta var vægast sagt einhver sá furðulegasti handboltaleikur sem um getur þar sem ekki helmingur international-liðsins kunni reglurnar í handbolta á meðan andstæðingarnir voru stelpur sem allar hafa æft handbolta ásamt tveim strákum sem báðir kunna allavega reglurnar. En international-liði samanstóð af tveim Ungverjum, tveim Lettum, einum frá Úganda, einum Bandaríkjamanni og svo mér. Svo vorum við að vísu með tvo landsliðsmenn frá Oman á okkar bandi en þeir komu ekki inn á nema rétt í blálokin þegar við vorum komin svona ca. 10 mörkum undir. Við töpuðum svo með 2 mörkum.
Svo núna um helgina er eitthvað floorball lið búið að vera hérna í heimsókn. Floorball er svona mjög svipað bandíi, nema það er spilað á svona hokkívelli þ.e. það er hægt að fara á bak við markið, og markmaðurinn er í svona þykkum galla með hjálm og enga kilfu. En við erum búin að vera að skemmta okkur saman þessa helgi, í gærkvöldi var svona tónlistar-, bíómynda-, íþróttaspurningakeppni þar sem við heyrðum allskonar tónlist og brot út bíómyndum og íþróttaviðureignum og svo áttum við að svara spurningum tengdum því. Svo var einn flokkur í spurningakeppninni Syng selv þar sem einn átti að koma upp og setja upp heyrnatól og syngja svo lagið sem hann heyrði. Þetta var svona skemmtilegasti parturinn af keppninni.
Í dag vorum við svo að keppa við liðið, strákarnir kepptu sér og stelpurnar sér og það varð jafntefli í báðum leikjunum.
En já, kl. 5:45 á föstudagsmorguninn næsta mun Fannar minn renna í hlað hérna á lestarstöðinni í Brönderslev og hann ætlar að vera hérna hjá mér yfir helgina. Ég get ekki beðið!! :D Svo eru líka einhverjar reglur hérna í skólanum sem segja að ef maður er með gest hérna þá á hann að koma í tímana, sem þýðir að Fannar mun líklega koma með mér í Powersport og hugsanlega eitthvað fleira. En það er samt engin skylda að taka þátt í íþróttunum, það er í lagi að horfa bara á, en ég er nokkuð viss um að það sé skemmtilegra að taka þátt.
En ætli ég láti þetta ekki gott heita. Ég bið bara að heilsa og sendi öllum eitt stórt kraaaam.
Þá er ekki fleira í þættinum að þessu sinni, veriði sæl.
Sigurlaug
2 comments:
Halló sæta,góður titill ;) sveppatínsla, frábært, mig hefur alltaf langað til þess að tína sveppi, helst einhverja aðra en þá sem vaxa í kirkjugarðinum hérna, þeir eru vondir.
Ég er byrjaður að hita upp fyrir íþróttatímana sem ég á að mæta í á föstudaginn, ég ætla sko ekki að koma að láta fólk koma að tómum kofanum þar. Fyrst að mér tókst að lifa af eina fótboltaæfingu hjá þrumuskyttunum í Svarfaðardalnum þá hlít ég nú að komast í gegnum flest.
Aðeins fjórir dagar sætust.
Skjáumst.
Bara að kvitta fyrir mig:) Og flottur froskur;D
Post a Comment