Friday, October 24, 2008

Smá dund

Halló
Það er alveg að koma helgi.
Í dag hættir sólin að skína á Urðabæ og hún mun ekki láta sjá sig fyrr en í fyrsta lagi 17. febrúar. Ég sagði Lori, ástralska herbergisfélaga mínum, þetta og hún gapti. Um þetta leiti er 30°C þar sem hún býr og það er meira að segja á kaldari hluta Ástralíu.
Það er svo mikil framlenging á sumrinu að vera hérna í Danmörku. Í fyrradag var húsvörðurinn meira að segja að slá grasblettinn hérna fyrir utan gluggann minn!

Ég átti hérna lausa stund og mér til gamans var ég að skoða dagatalið mitt og telja. Ég taldi að það eru...
...70 dagar síðan ég byrjaði í NIH
...72 dagar síðan ég sá fjölskylduna mína
...7 dagar þar til Fannar kemur í heimsókn :D
...13 dagar þar til Arnhildur og Baldvina koma í heimsókn :D
...46 dagar þar til við í Adventure förum til Noregs á skíði
...58 dagar þar til skólinn klárast
...60 dagar til ég kem arkandi inn um forstofudyrnar heima á Urðum og kalla: Halló!!

Núna er fyrsta vikan á seinni önninni að klárast. Á þessari önn verð ég í sundi, handbolta og adventure (ævintýrum). Mér lýst bara rosalega vel á þetta og ég held að þetta verði bara mjög skemmtileg önn.
En það er kominn hádegismatur núna, ég ætla að fara að háma í mig rúgbrauði með síld, nammi namm.

Ég bið bara að heilsa öllum
Hafið það ævinlega sem allra best
Sigurlaug

Saturday, October 18, 2008

Þemavika

Komiði sæl og blessuð

Þessa síðustu viku er búin að vera þemavika þar sem að þessi fyrri önn er að enda og ný að byrja. Við erum búin að gera svo margt að ég hef efni í margar færslur en ég ætla bara að reyna að segja stuttlega frá öllu þessu.
Á sunnudagskvöldið var haldinn lítill fundur um það sem framundan væri. Okkur var skipt í hópa og ég lenti í hópi með Alette sem er dönsk og Maiken sem er norsk. Svo var okkur sagt að á morgun (mánudag) yrði skólanum lokað kl. 10:00 og eftir það kæmist enginn inn í skólann fyrr en í fyrsta lagi kl. 17:00 á þriðjudeginum. Hver nemandi fékk svo 100 kr. og svo áttu hóparnir bara að redda sér. Til að gera langa sögu stutta þá gistum við þrjár heima hjá mömmu Alette sem býr í Nibe. Þar fórum við á hestbak (og athugið, ég var ekkert hrædd) og borðuðum ljúffengan mat.



Í Álaborg


Komnar á dönsk hestbök



Á miðvikudeginum var svo sögutími. Þá sögðu allir hóparnir frá sínu ferðalagi og sýndu myndir og myndbönd. Það voru í allt ca. 18 hópar svo mestmegnið af deginum fór í ferðasögur.

Á fimmtudeginum voru svona workshops (vinnubúðir). Fyrir hádegi var ég í Hyg & Byg (ég veit ekki alveg hvernig á að þýða Hyg & Byg en hugmyndin er að hafa það huggulegt og byggja í leiðinni). Við vorum sem sagt að halda áfram með kofa sem Teambuilder-arnir eru að byggja og á tveim tímum tókum við tvær kaffipásur og borðuðum súkkulaðikökur. Svo er líka svona eldstæði þarna skammt frá kofanum og þar kveiktum við eld sem við gátum yljað okkur við í pásunum.


Eftir hádegi fór ég svo í veiðitúr. Ég og Elín vorum einu stelpurnar sem völdum að fara að veiða og við deildum saman einni veiðistöng. Það er skemmst frá því að segja að við veiddum ekki neitt nema eitt heljarinnar tré, já tré, í fyrsta kasti.

Að veiða

Svo þegar við komum svo úr veiðitúrnum fór ég í heimsókn til Kidda frænda míns og Eddu konunnar hans. Þau búa ca. 100 km frá Brönderslev en voru stödd í hjólhýsinu þeirra þessa viku í ótrúlega flottum hjólhýsagarði aðeins 18 km frá skólanum. Kiddi var svo elskulegur að sækja mig í skólann og svo sýndi hann mér svona næsta nágreni við hjólhýsagarðinn, t.d. ótrúlega flotta strönd sem er bara rétt hjá. En svo var mér bara boðið í veislu í hjólhýsið þeirra þar sem var grillað lambakjöt og bakaðar kartöflur í matinn og svo ávextir og rjómi í eftirmat. Namm það var gott, mér leið eins og ég væri bara í útlegu á Íslandi :)

Kiddi og Edda :)

En svo sýndu þau mér líka hluta af þessum risastóra hjólhýsagarði, og það er bara allt til staðar þarna. Það eru eldhús þarna, sundlaug, míní-golfvöllur, íþróttahús, bíósalur og svo er líka ótrúlega krúttlegt barnabaðherbergi þar sem vaskar og klósett eru öll í svona smækkuðum útgáfum alveg sérhönnuð fyrir börn.

Í gær var svo síðasti dagur þemavikunnar sem endaði auðvita á veislu, meira að segja brúðkaupsveislu. Já, í gær var brúðkaup, tvöfalt brúðkaup. Þannig var nú það að á fimmtudeginum drógu allir númer. Hvert númer táknaði hlutverk sem hver og einn hafði svo í veislunni í gær. Það voru tvenn brúðhjón, þar af ein hommabrúðhjón, og svo voru fjölskyldur og vinir þeirra. Ég dró númerið 15 og því var ég amma Krestens, annars hommans sem var að gifta sig. Það voru samt bara brúðhjónin sem þurftu að vera í karakter allan daginn, svo ég þurfti ekki að byrja að leika ömmu fyrr en kl. 18:00 þegar veislan byrjaði. En um daginn fórum við t.d. í steggjaveislu þar sem við fórum meðal annars í málningarleik þar sem tveir og tveir voru saman. Svo átti annar að mála hinn með varalit og augnskugga sem okkur var afhent, og þurfti sá sem málaði að sitja fyrir aftan módelið á meðan málað var, svo það var ekki hægt að sjá framan í viðkomandi. Ég var svo heppin að Elín málaði mig svo ég endaði með augnskugga upp á enni og varalit upp á kinnar. Ég var glæsileg.


Það voru margir skrautlegir eftir málningarleikinn

Ég var ómótstæðileg

En svo vorum við að gera allt klárt fyrir veisluna, búa til skreytingar og baka kökur og síðast en ekki síst að finna einhver föt til að klæðast í veislunni. Ég fann fullkomin ömmu-föt. Einhverja þá allra ömmulegustu skó sem hægt er að hugsa sér og þeir voru bara einu númeri of stórir, og svo vesti og pils sem voru eins og sniðin á mig. Já ég var sko heppin á keppinn. Svo var veislunni startað kl. 18:00 og var þetta bara eins og alvöru brúðkaupsveisla. Reyndar mátti sjá ansi marga skrautlega veislugesti þarna, að sjálfsögðu marga homma, hippa, glansgellur, ömmur, afa, frændur, frænkur, bræður og systur en ég held að myndirnar útskýri þetta bara best.



Fólk að koma í brúðkaupsveislu

Linn hippi


Mikael og Mikkel


Amma litla


Já, nú sit ég hér í herberginu mínu og hlusta á Orð skulu standa.

Á morgun koma 11 nýir nemendur í skólann, það verður gaman.

En ég bið bara að heilsa ykkur öllum elskurnar mínar
Hafiði það nú sem best

Kys og kram
Sigurlaug

Sunday, October 12, 2008

Ollerup og hraðbankaferð

Halló
Þá er að rifja upp hvað hefur gerst síðustu daga...

Við fórum til Ollerup að keppa í hinum og þessum íþróttum. Ég keppti í fótbolta. Á einum degi spilaði ég fótbolta í 2,5 tíma. Svona til að gera langa sögu stutta þá töpuðum við öllum leikjunum, náðum reyndar að skora eitt mark í einum leik og komast yfir 1-0 en sá leikur tapaðist 2-1. Það var samt ótrúlega gaman að fara þarna í íþróttaskólann í Ollerup. Þetta er stærsti íþróttaskólinn í Danmörku og það var sko nóg pláss til að taka á móti öllum þessum skólum sem komu. Þeir skólar sem ég man eftir að hafi komið þangað voru Århus, Álaborg, Viborg, Gerlev, Ikast og svo auðvita við í NIH. Þegar við komum í skólann eftir 5 tíma rútuferð fórum við í göngutúr um skólann og enduðum svo á að sjá salinn sem við áttum að sofa í. Svo skemmtilega vildi til að við vorum rétt hjá trampólínsal skólans, já, skólinn var með sér trampólínsal. Við gátum því tekið nokkur hopp svona fyrir svefninn :)


Trampólínin góðu


Það var svona hojskoleaften kvöldið sem við komum

En það sem var skemmtilegast í ferðinni var að annað stelpuliðið sem keppti í blaki endaði í fyrsta sæti! Það var ótrúlega gaman að horfa á úrslitaleikinn þar sem allur skólinn horfði á og hvatti stelpurnar, Pigerne fra NIH, lo lo lo lo lo, ótrúlega gaman.


Úrslitaleikurinn í blaki

Ég var líka svo ótrúlega heppinn að sjá Örn Arnarson sundkappa. Hann er víst í íþróttaskólanum í Álaborg. Og hvað haldiði, hann meiddist á hné þegar hann var að keppa í handbolta. En Álaborg vann handboltakeppnina og þegar þeir voru að fara að taka á móti viðurkenningunni voru nokkrir sem báru Örn á sjúkrabörum upp á svið til að fá viðurkenninguna.
En nóg um það.

Á þriðjudaginn kláraðist út af þvottakortinu mínu. Ef maður á ekkert inn á þvottakortinu sínu þýðir það að maður getur ekki þvegið þvott og þegar maður er í íþróttum alla daga er þvotturinn ekki lengi að safnast upp. Það var því eina ráðið að fjárfesta í nýju þvottakorti. En ég átti engann pening nema inn á kortinu mínu. Svo ég neyddist því til að gera mér ferð út í hraðbanka. En eins og staða er í dag verður maður að hugsa sig tvisvar um áður en maður fer og tekur út pening. Ég fór því oftar sem áður á netið til að athuga stöðu krónunnar, gott ef það var ekki á miðvikudagsmorguninn. Þá sá ég að hún hafði styrkst um góð 13% og 1 dkk kostaði u.þ.b. 18,5 ísl.kr. Ég hugsaði mér þá að ég myndi fara í hraðbankann í dag og taka út pening. Eftir hádegismat, rétt áður en ég hugðist fara niður í bæ kíkti ég aftur á netið, sem betur fer, því þá sá ég að krónan hafði veikst um 25% og 1 dkk kostaði þá rúmar 25 ísl.kr!! Ég hætti því í snarhasti við að fara niður í bæ. Um kvöldmatarleytið fór ég enn og aftur á netið til að athuga gengið og viti menn, krónann hafi styrkst aftur og nú var 1 dkk á 16,9 ísl.kr. Þvílíkur rússíbani. Ég hjólaði því í myrkrinu niður í bæ og tók út pening. Þvílíkt og annað eins.

Þannig er nú það já.
Í gær áttu norsku tvíburasysturnar afmæli. Í tilefni þess máluðum ég, Nicolas og Mathias afmæliskveðjur á íslensku, dönsku, norku og ensku á stór plaköt og svo í gærmorgun, kl. 7:30 fórum við Nicolas út og þöktum glugga stelpnanna með afmæliskveðjunum svo það fyrsta sem þær sáu í gærmorgun þegar þær vöknuðu voru þessi ótrúlega fl0ttu plaköt.


Mathias í plakatagerð

En já, núna er þessi fyrri önn liðin undir lok (pottlok?) og næsta vika er svona þemavika. Svo vikuna eftir það hefst ný önn og þá byrjum við í nýjum fögum sem við völdum okkur. Í fyrstu valdi ég adventure, sund og dans en eftir langa umhugsun ákvað ég að velja handbolta í staðinn fyrir dans...ég held ég verði að hafa eina boltaíþrótt. Ég er nú bara þannig.

En ætli ég fari ekki að segja þetta gott í bili.
Ég við bara að heilsa ykkur öllum

Sigurlaug

p.s. Mamma, ég er búin að hringja í Kidda frænda, það var mjög gaman að tala við hann :)

Sunday, October 5, 2008

Mafíuhelgi

Heil og sæl
Þessi helgi er búin að vera alveg hreint ótrúlega skemmtileg. Það var nefnilega þannig að þessa helgi gátu fyrrverandi nemendur skólans komið í heimsókn og það var allskonar húllumhæ í kring um það allt saman. Nokkrir af eldri nemendunum höfðu skipulagt helgina og ákveðið að hafa svona mafíuþema sem var mjög svo skemmtilegt. Á föstudagskvöldinu var okkur skipt í fjölskyldur og samanstóðu fjölskyldurnar bæði af núverandi og fyrrverandi nemendum. Svo átti hver fjölskylda fyrir sig að finna fjölskyldunafn og öllum fjölskyldumeðlimum var úthlutað eitthvert hlutverk. Fjölskyldunafnið sem varð fyrir valinu í okkar hóp var The Caines og hét guðfaðirinn í fjölskyldunni Co, þ.e.a.s. Co Caine. Okkur fannst þetta voða sniðugt. Ég fékk það verðuga hlutverk að vera annar af lífvörðum guðföðurins og ég fékk nafnið Claudia Caine, the nutcracker. Þarna á föstudagskvöldinu fengum við líka allskonar dót sem við áttum að nota til að búa til hest. Dótið samanstóð af priki, mjólkurfernu, sokki, perlum, límbandi, gylltu flaueli, litum, sogrörum og teygjum. Ásamt því fengum við tvo litla poka með hvítu dufti í og áttu þeir víst að þykja mjög verðmætir. En við bjuggum til stæðilegan fák sem hlaut nafnið Speed-y. Svo áður en við áttum að hittast og kynna fjölskyldurnar og hestana fóru flestir í búningaherberi sem er hérna í skólanum og reyndu að finna sér eitthvað nógu mafíulegt til að klæðast. Ég fann mér forláta bindi.

Kynningar á fjölskyldum og hestum á föstudagskvöldinu (Speed-y sést þarna til vinstri, föngulegur foli þar á ferð)

Á laugardeginum hófst svo dagskáin strax kl. 9 og þá var okkur sagt frá dagskránni fyrir daginn. Fjölskyldurnar áttu sem sagt að keppa í allskonar þrautum og fá pening fyrir og sú fjölskylda sem endaði með mest af peningum ynni. Svo var auðvita mikil undirheimastarfsemi með hvíta duftið sem allar fjölskyldurnar fengu og margir lifðu sig mjög mikið inn í leikinn. Hápunktur keppninnar voru líklega veðreiðarnar en þá þurftu 4 út hverri fjölskyldu að hlaupa með fjölskylduhrossið á milli lappanna, 400 metra hver.
Svo þegar keppninni var lokið um daginn fórum við að undirbúa fyrir kvöldið og við dekkuðum borð í mafíustíl. Svo var bara að dressa sig upp og ég og Elín fundum okkur svo rauða síða flauelskjóla í búningsherberginu sem okkur fannst alveg tilvaldir til að klæðast í partíinu. Svo var bara greiðsla og málning í stíl og við vorum klárar í slaginn. Og til að fullkomna búninginn fann Elín sér stóra svarta vatnsbyssu. Myndirnar tala bara sínu máli.
En svo borðuðum við góðan mat og svo var bara dansað og dansað, heilmikið stuð.


Elín, Hrefna, Lori og ég


Dansað á borðum og stólum (alltaf þegar ákveðið lag er spilað)

En í dag er bara búinn að vera rólegur dagur, ég reyndar keppti í fótbolta með liðinu mínu The Hurrycanes á móti Louis Dreamteam og við unnum þann leik 3-2 þrátt fyrir að hafa verið 2-0 undir þegar 5 mínútur voru eftir.
Á morgun erum við svo að fara til Ollerup. Þar eru margir danskir íþróttalýðháskólar að fara að hittast og keppa í ýmsum íþróttum, ég keppi í fótbolta. Það verður án efa skemmtilegt.

En ég bið bara að heilsa. Hafiði það ævinlega sem best
Kys og kram
Sigurlaug

Wednesday, October 1, 2008

Já lýsi fer beint ofan í minn maga...alla daga!

Í þessum skrifuðu orðum jafngildir ein dönsk króna 20,519 íslenskum krónum! Þegar ég kom hingað til Danmerkur var hún ca. 16,5 ísl. krónur. Já þetta er ljótt. Krónan veikist bara og veikist. Í öllu þessu fjármálasvartnætti sé ég einn mjög svo óskíran ljósan blett og það eru 20 evrurnar sem ég á heima sem ég keypti þegar ég fór til Rhodos fyrir rúmu ári en þær keypti ég fyrir u.þ.b. 1800 ísl. krónur en núna jafngilda þær rúmum 3000 krónum.

En ég ætla nú ekki að nota blekið í að kvarta yfir þessu. Það væri frekar að ég skrifaði eitthvað upplífgandi um skólavistina hérna.
Síðasta helgi var ljúf, ó svo ljúf. Ég fékk nefnilega heimsókn frá honum elsku Fannari mínum. Mikið var gott að hafa hann hérna. Helgin leið svo hratt, reyndar líða allar helgar hratt, en þessi leið alveg sérstaklega hratt.


Núna á ég líka birgðir af lýsi, ópal, súkkulaðirúsínum og harðfiski. Reyndar er hálft kíló af súkkulaðirúsínum horfið, en það er hálft kíló eftir. Ég held að ég bíði aðeins með að opna kassann, bara svona til þess að eiga það til hörðu áranna.

Ég er svo þreytt akkurat núna. Það er búin að vera ansi stíf dagskrá í dag. Klukkan 8:00 fór ég í powersport og að þessu sinni var duatlon þ.e. fyrst hleypur maður, svo hjólar maður og að lokum hleypur maður aftur. Fyrst hlupum við 3 km, svo hjóluðum við 10 km og svo hlupum við 3 km aftur. Þetta gerði ég á góðum 53 mínútum. Það var svo erfitt að fara að hlaupa aftur eftir að hafa hjólað 10 km, fæturnir á mér voru eins og grjót, og ef ég skildi Peter kennara rétt erum við að fara að gera svipað næsta föstudag, nema það verður triatlon, þá bæði hlaupum við, hjólum og syndum.
En allavega, eftir powersportið var teambold og við fórum í handbolta að þessu sinni. Það var stuð. Svo var matur og svo international class. Núna erum við í international hópnum farin að skipuleggja international daginn sem verður 6. nóvember, einmitt þegar að Baldvina og Arnhildur koma hingað í heimsókn :) Það verður stuð, ó já.
Svo eftir international tímann fór ég í fótbolta í þessari líka mígandi rigningu. Fyrst var bara svona lítil rigning en svo komu smá þrumur og þá gerði líka þetta ekkert smá úrhelli, svona eins og í bíómyndunum.
En síðan eftir kvöldmat fór ég í spinning í klukkutíma, úff það reyndi á. Og núna er ég eiginlega púnteruð. Það er ágætt að vita til þess að morgundagurinn verður ekki eins strembinn.

En núna ætla ég bara að fara að sofa
Bið að heilsa öllum

Sigurlaug