Þessa síðustu viku er búin að vera þemavika þar sem að þessi fyrri önn er að enda og ný að byrja. Við erum búin að gera svo margt að ég hef efni í margar færslur en ég ætla bara að reyna að segja stuttlega frá öllu þessu.
Á sunnudagskvöldið var haldinn lítill fundur um það sem framundan væri. Okkur var skipt í hópa og ég lenti í hópi með Alette sem er dönsk og Maiken sem er norsk. Svo var okkur sagt að á morgun (mánudag) yrði skólanum lokað kl. 10:00 og eftir það kæmist enginn inn í skólann fyrr en í fyrsta lagi kl. 17:00 á þriðjudeginum. Hver nemandi fékk svo 100 kr. og svo áttu hóparnir bara að redda sér. Til að gera langa sögu stutta þá gistum við þrjár heima hjá mömmu Alette sem býr í Nibe. Þar fórum við á hestbak (og athugið, ég var ekkert hrædd) og borðuðum ljúffengan mat.
Í Álaborg
Komnar á dönsk hestbök
Á miðvikudeginum var svo sögutími. Þá sögðu allir hóparnir frá sínu ferðalagi og sýndu myndir og myndbönd. Það voru í allt ca. 18 hópar svo mestmegnið af deginum fór í ferðasögur.
Á fimmtudeginum voru svona workshops (vinnubúðir). Fyrir hádegi var ég í Hyg & Byg (ég veit ekki alveg hvernig á að þýða Hyg & Byg en hugmyndin er að hafa það huggulegt og byggja í leiðinni). Við vorum sem sagt að halda áfram með kofa sem Teambuilder-arnir eru að byggja og á tveim tímum tókum við tvær kaffipásur og borðuðum súkkulaðikökur. Svo er líka svona eldstæði þarna skammt frá kofanum og þar kveiktum við eld sem við gátum yljað okkur við í pásunum.
Eftir hádegi fór ég svo í veiðitúr. Ég og Elín vorum einu stelpurnar sem völdum að fara að veiða og við deildum saman einni veiðistöng. Það er skemmst frá því að segja að við veiddum ekki neitt nema eitt heljarinnar tré, já tré, í fyrsta kasti.
Svo þegar við komum svo úr veiðitúrnum fór ég í heimsókn til Kidda frænda míns og Eddu konunnar hans. Þau búa ca. 100 km frá Brönderslev en voru stödd í hjólhýsinu þeirra þessa viku í ótrúlega flottum hjólhýsagarði aðeins 18 km frá skólanum. Kiddi var svo elskulegur að sækja mig í skólann og svo sýndi hann mér svona næsta nágreni við hjólhýsagarðinn, t.d. ótrúlega flotta strönd sem er bara rétt hjá. En svo var mér bara boðið í veislu í hjólhýsið þeirra þar sem var grillað lambakjöt og bakaðar kartöflur í matinn og svo ávextir og rjómi í eftirmat. Namm það var gott, mér leið eins og ég væri bara í útlegu á Íslandi :)
En svo sýndu þau mér líka hluta af þessum risastóra hjólhýsagarði, og það er bara allt til staðar þarna. Það eru eldhús þarna, sundlaug, míní-golfvöllur, íþróttahús, bíósalur og svo er líka ótrúlega krúttlegt barnabaðherbergi þar sem vaskar og klósett eru öll í svona smækkuðum útgáfum alveg sérhönnuð fyrir börn.
Í gær var svo síðasti dagur þemavikunnar sem endaði auðvita á veislu, meira að segja brúðkaupsveislu. Já, í gær var brúðkaup, tvöfalt brúðkaup. Þannig var nú það að á fimmtudeginum drógu allir númer. Hvert númer táknaði hlutverk sem hver og einn hafði svo í veislunni í gær. Það voru tvenn brúðhjón, þar af ein hommabrúðhjón, og svo voru fjölskyldur og vinir þeirra. Ég dró númerið 15 og því var ég amma Krestens, annars hommans sem var að gifta sig. Það voru samt bara brúðhjónin sem þurftu að vera í karakter allan daginn, svo ég þurfti ekki að byrja að leika ömmu fyrr en kl. 18:00 þegar veislan byrjaði. En um daginn fórum við t.d. í steggjaveislu þar sem við fórum meðal annars í málningarleik þar sem tveir og tveir voru saman. Svo átti annar að mála hinn með varalit og augnskugga sem okkur var afhent, og þurfti sá sem málaði að sitja fyrir aftan módelið á meðan málað var, svo það var ekki hægt að sjá framan í viðkomandi. Ég var svo heppin að Elín málaði mig svo ég endaði með augnskugga upp á enni og varalit upp á kinnar. Ég var glæsileg.
En svo vorum við að gera allt klárt fyrir veisluna, búa til skreytingar og baka kökur og síðast en ekki síst að finna einhver föt til að klæðast í veislunni. Ég fann fullkomin ömmu-föt. Einhverja þá allra ömmulegustu skó sem hægt er að hugsa sér og þeir voru bara einu númeri of stórir, og svo vesti og pils sem voru eins og sniðin á mig. Já ég var sko heppin á keppinn. Svo var veislunni startað kl. 18:00 og var þetta bara eins og alvöru brúðkaupsveisla. Reyndar mátti sjá ansi marga skrautlega veislugesti þarna, að sjálfsögðu marga homma, hippa, glansgellur, ömmur, afa, frændur, frænkur, bræður og systur en ég held að myndirnar útskýri þetta bara best.
3 comments:
Aldeilis skemmtilegt allt saman hreint. Svo skemmtilegt að ég veit bara ekki hvað ég á að skrifa í komment við þetta.
ps. hér er snjór og frost. Og það er búið að bólstra framan við altarið í kirkjunni.
Sæl, amma...
Þetta var nú gaman að lesa.
Hvenær þurfum við B að láta vita með þessar máltíðir? Veistu að ég hef tekið eftir því að fólk hér fyrir sunnan segir mált-íðir en ekki máltíðir, skondið.
HLAKKA TIL AÐ SJÁ ÞIG!!!
bestu kveðjur,
Alli singó
Sælar,
Flott Volkswagen Bjalla sem þú fannst þarna í Álaborg, drauma bíllinn.
Ég held ég hafi bara orðið meira ástfanginn af þér þegar ég sá hvernig þú varst máluð, húllala, en sú gella.
Gaman að sjá að það er aldrei dauð stund í baunalandi.
Skemmtu þér vel sættust.
:*
Post a Comment