En ég ætla nú ekki að nota blekið í að kvarta yfir þessu. Það væri frekar að ég skrifaði eitthvað upplífgandi um skólavistina hérna.
Síðasta helgi var ljúf, ó svo ljúf. Ég fékk nefnilega heimsókn frá honum elsku Fannari mínum. Mikið var gott að hafa hann hérna. Helgin leið svo hratt, reyndar líða allar helgar hratt, en þessi leið alveg sérstaklega hratt.
Núna á ég líka birgðir af lýsi, ópal, súkkulaðirúsínum og harðfiski. Reyndar er hálft kíló af súkkulaðirúsínum horfið, en það er hálft kíló eftir. Ég held að ég bíði aðeins með að opna kassann, bara svona til þess að eiga það til hörðu áranna.
Ég er svo þreytt akkurat núna. Það er búin að vera ansi stíf dagskrá í dag. Klukkan 8:00 fór ég í powersport og að þessu sinni var duatlon þ.e. fyrst hleypur maður, svo hjólar maður og að lokum hleypur maður aftur. Fyrst hlupum við 3 km, svo hjóluðum við 10 km og svo hlupum við 3 km aftur. Þetta gerði ég á góðum 53 mínútum. Það var svo erfitt að fara að hlaupa aftur eftir að hafa hjólað 10 km, fæturnir á mér voru eins og grjót, og ef ég skildi Peter kennara rétt erum við að fara að gera svipað næsta föstudag, nema það verður triatlon, þá bæði hlaupum við, hjólum og syndum.
En allavega, eftir powersportið var teambold og við fórum í handbolta að þessu sinni. Það var stuð. Svo var matur og svo international class. Núna erum við í international hópnum farin að skipuleggja international daginn sem verður 6. nóvember, einmitt þegar að Baldvina og Arnhildur koma hingað í heimsókn :) Það verður stuð, ó já.
Svo eftir international tímann fór ég í fótbolta í þessari líka mígandi rigningu. Fyrst var bara svona lítil rigning en svo komu smá þrumur og þá gerði líka þetta ekkert smá úrhelli, svona eins og í bíómyndunum.
En síðan eftir kvöldmat fór ég í spinning í klukkutíma, úff það reyndi á. Og núna er ég eiginlega púnteruð. Það er ágætt að vita til þess að morgundagurinn verður ekki eins strembinn.
En núna ætla ég bara að fara að sofa
Bið að heilsa öllum
Sigurlaug
2 comments:
Halló sætust, eins og þú sjálf væntanlega veist þá hafði ég óendanlega mikið gaman af því að fá að heimsækja þig í skólann. Ekki slæmt að mæta í grundtræning eftir að hafa verið vakandi í heilanótt í lest, sitjandi við hliðina á konu sem var bæði tvöföld og margföld og hraut eftir því.
Og ef ég var ekki búinn að segja það áður þá segi ég það núna að þú ert nú meira hörkutólið að vaða svoleiðis eldi og brennisteini allann daginn. að fara 6 km hlaupandi og tíu hjólandi, bregða sér í fótboltaleik frá helvíti og fara svo í spinning á eftir.....?
Þú þarft sennilega engan með þér í göngur á næsta ári, ferð bara ein og þræðir fjallið, umkringir kindurnar, hrekur þær í réttirnar og dregur þær svo allar í þá dilka sem þær eiga að vera..... og ferð svo að sjálfsögðu út í fótbolta á eftir.
Hlakka til að sjá þig næst :*
hæhæ
uss þetta er ekki neitt, ég fór í ræktina í klukkutíma! gerðu betur - djóók!
(en ég fór samt!)
svo er bara vonandi að einhver finni lækningu fyrir elsku litlu veiku krónuna...
sjáumst
kv. Baldvina
Post a Comment