Sunday, October 5, 2008

Mafíuhelgi

Heil og sæl
Þessi helgi er búin að vera alveg hreint ótrúlega skemmtileg. Það var nefnilega þannig að þessa helgi gátu fyrrverandi nemendur skólans komið í heimsókn og það var allskonar húllumhæ í kring um það allt saman. Nokkrir af eldri nemendunum höfðu skipulagt helgina og ákveðið að hafa svona mafíuþema sem var mjög svo skemmtilegt. Á föstudagskvöldinu var okkur skipt í fjölskyldur og samanstóðu fjölskyldurnar bæði af núverandi og fyrrverandi nemendum. Svo átti hver fjölskylda fyrir sig að finna fjölskyldunafn og öllum fjölskyldumeðlimum var úthlutað eitthvert hlutverk. Fjölskyldunafnið sem varð fyrir valinu í okkar hóp var The Caines og hét guðfaðirinn í fjölskyldunni Co, þ.e.a.s. Co Caine. Okkur fannst þetta voða sniðugt. Ég fékk það verðuga hlutverk að vera annar af lífvörðum guðföðurins og ég fékk nafnið Claudia Caine, the nutcracker. Þarna á föstudagskvöldinu fengum við líka allskonar dót sem við áttum að nota til að búa til hest. Dótið samanstóð af priki, mjólkurfernu, sokki, perlum, límbandi, gylltu flaueli, litum, sogrörum og teygjum. Ásamt því fengum við tvo litla poka með hvítu dufti í og áttu þeir víst að þykja mjög verðmætir. En við bjuggum til stæðilegan fák sem hlaut nafnið Speed-y. Svo áður en við áttum að hittast og kynna fjölskyldurnar og hestana fóru flestir í búningaherberi sem er hérna í skólanum og reyndu að finna sér eitthvað nógu mafíulegt til að klæðast. Ég fann mér forláta bindi.

Kynningar á fjölskyldum og hestum á föstudagskvöldinu (Speed-y sést þarna til vinstri, föngulegur foli þar á ferð)

Á laugardeginum hófst svo dagskáin strax kl. 9 og þá var okkur sagt frá dagskránni fyrir daginn. Fjölskyldurnar áttu sem sagt að keppa í allskonar þrautum og fá pening fyrir og sú fjölskylda sem endaði með mest af peningum ynni. Svo var auðvita mikil undirheimastarfsemi með hvíta duftið sem allar fjölskyldurnar fengu og margir lifðu sig mjög mikið inn í leikinn. Hápunktur keppninnar voru líklega veðreiðarnar en þá þurftu 4 út hverri fjölskyldu að hlaupa með fjölskylduhrossið á milli lappanna, 400 metra hver.
Svo þegar keppninni var lokið um daginn fórum við að undirbúa fyrir kvöldið og við dekkuðum borð í mafíustíl. Svo var bara að dressa sig upp og ég og Elín fundum okkur svo rauða síða flauelskjóla í búningsherberginu sem okkur fannst alveg tilvaldir til að klæðast í partíinu. Svo var bara greiðsla og málning í stíl og við vorum klárar í slaginn. Og til að fullkomna búninginn fann Elín sér stóra svarta vatnsbyssu. Myndirnar tala bara sínu máli.
En svo borðuðum við góðan mat og svo var bara dansað og dansað, heilmikið stuð.


Elín, Hrefna, Lori og ég


Dansað á borðum og stólum (alltaf þegar ákveðið lag er spilað)

En í dag er bara búinn að vera rólegur dagur, ég reyndar keppti í fótbolta með liðinu mínu The Hurrycanes á móti Louis Dreamteam og við unnum þann leik 3-2 þrátt fyrir að hafa verið 2-0 undir þegar 5 mínútur voru eftir.
Á morgun erum við svo að fara til Ollerup. Þar eru margir danskir íþróttalýðháskólar að fara að hittast og keppa í ýmsum íþróttum, ég keppi í fótbolta. Það verður án efa skemmtilegt.

En ég bið bara að heilsa. Hafiði það ævinlega sem best
Kys og kram
Sigurlaug

3 comments:

Anonymous said...

Þú ert alla vega klárlega með mafíulúkkið, The Nutcracker..... ég held að ég þurfi ekki að velta því fyrir mér hver þín sérgrein er, eins gott að halda sig bara á mottuni og gelta.
Vel gert að rústa fótboltanum svona á síðustu 5 mínútunum, þú tókst vonandi hjólhest til þess að nudda andstæðingum en frekar upp úr ósigrinum. Sé þig í anda hlaupa að þeim eftir leikinn, öskrandi ,,Face!"
Rústaðu lýðháskóla keppninni líka, hef fulla trú á þér.
:*

Unknown said...

Gaman, hopp og hí og svo framvegis. Góðar stundir.

Anonymous said...

vó hvar hef ég verið síðustu daga, alltíeinu komin tvö ólesin blogg að minni hálfu:D Fullkomið svona í tilefni dagsins:)
Djöfull varstu ótrúlega mafíuleg í rauða silkikjólnum, og hehe ég þekkti þig ekki fyrst, var að leita að þér á myndinni;)
gamangaman að lesa:)
ég er að horfa á haarde í sjónvarpinu, rofin dagskrá, bein útsending, ávarpa þjóðina. vá ég skil svo lítið hvað er að gerast, en þetta er víst allt voðavoða...