Sunday, October 12, 2008

Ollerup og hraðbankaferð

Halló
Þá er að rifja upp hvað hefur gerst síðustu daga...

Við fórum til Ollerup að keppa í hinum og þessum íþróttum. Ég keppti í fótbolta. Á einum degi spilaði ég fótbolta í 2,5 tíma. Svona til að gera langa sögu stutta þá töpuðum við öllum leikjunum, náðum reyndar að skora eitt mark í einum leik og komast yfir 1-0 en sá leikur tapaðist 2-1. Það var samt ótrúlega gaman að fara þarna í íþróttaskólann í Ollerup. Þetta er stærsti íþróttaskólinn í Danmörku og það var sko nóg pláss til að taka á móti öllum þessum skólum sem komu. Þeir skólar sem ég man eftir að hafi komið þangað voru Århus, Álaborg, Viborg, Gerlev, Ikast og svo auðvita við í NIH. Þegar við komum í skólann eftir 5 tíma rútuferð fórum við í göngutúr um skólann og enduðum svo á að sjá salinn sem við áttum að sofa í. Svo skemmtilega vildi til að við vorum rétt hjá trampólínsal skólans, já, skólinn var með sér trampólínsal. Við gátum því tekið nokkur hopp svona fyrir svefninn :)


Trampólínin góðu


Það var svona hojskoleaften kvöldið sem við komum

En það sem var skemmtilegast í ferðinni var að annað stelpuliðið sem keppti í blaki endaði í fyrsta sæti! Það var ótrúlega gaman að horfa á úrslitaleikinn þar sem allur skólinn horfði á og hvatti stelpurnar, Pigerne fra NIH, lo lo lo lo lo, ótrúlega gaman.


Úrslitaleikurinn í blaki

Ég var líka svo ótrúlega heppinn að sjá Örn Arnarson sundkappa. Hann er víst í íþróttaskólanum í Álaborg. Og hvað haldiði, hann meiddist á hné þegar hann var að keppa í handbolta. En Álaborg vann handboltakeppnina og þegar þeir voru að fara að taka á móti viðurkenningunni voru nokkrir sem báru Örn á sjúkrabörum upp á svið til að fá viðurkenninguna.
En nóg um það.

Á þriðjudaginn kláraðist út af þvottakortinu mínu. Ef maður á ekkert inn á þvottakortinu sínu þýðir það að maður getur ekki þvegið þvott og þegar maður er í íþróttum alla daga er þvotturinn ekki lengi að safnast upp. Það var því eina ráðið að fjárfesta í nýju þvottakorti. En ég átti engann pening nema inn á kortinu mínu. Svo ég neyddist því til að gera mér ferð út í hraðbanka. En eins og staða er í dag verður maður að hugsa sig tvisvar um áður en maður fer og tekur út pening. Ég fór því oftar sem áður á netið til að athuga stöðu krónunnar, gott ef það var ekki á miðvikudagsmorguninn. Þá sá ég að hún hafði styrkst um góð 13% og 1 dkk kostaði u.þ.b. 18,5 ísl.kr. Ég hugsaði mér þá að ég myndi fara í hraðbankann í dag og taka út pening. Eftir hádegismat, rétt áður en ég hugðist fara niður í bæ kíkti ég aftur á netið, sem betur fer, því þá sá ég að krónan hafði veikst um 25% og 1 dkk kostaði þá rúmar 25 ísl.kr!! Ég hætti því í snarhasti við að fara niður í bæ. Um kvöldmatarleytið fór ég enn og aftur á netið til að athuga gengið og viti menn, krónann hafi styrkst aftur og nú var 1 dkk á 16,9 ísl.kr. Þvílíkur rússíbani. Ég hjólaði því í myrkrinu niður í bæ og tók út pening. Þvílíkt og annað eins.

Þannig er nú það já.
Í gær áttu norsku tvíburasysturnar afmæli. Í tilefni þess máluðum ég, Nicolas og Mathias afmæliskveðjur á íslensku, dönsku, norku og ensku á stór plaköt og svo í gærmorgun, kl. 7:30 fórum við Nicolas út og þöktum glugga stelpnanna með afmæliskveðjunum svo það fyrsta sem þær sáu í gærmorgun þegar þær vöknuðu voru þessi ótrúlega fl0ttu plaköt.


Mathias í plakatagerð

En já, núna er þessi fyrri önn liðin undir lok (pottlok?) og næsta vika er svona þemavika. Svo vikuna eftir það hefst ný önn og þá byrjum við í nýjum fögum sem við völdum okkur. Í fyrstu valdi ég adventure, sund og dans en eftir langa umhugsun ákvað ég að velja handbolta í staðinn fyrir dans...ég held ég verði að hafa eina boltaíþrótt. Ég er nú bara þannig.

En ætli ég fari ekki að segja þetta gott í bili.
Ég við bara að heilsa ykkur öllum

Sigurlaug

p.s. Mamma, ég er búin að hringja í Kidda frænda, það var mjög gaman að tala við hann :)

3 comments:

Unknown said...

Örn Arnarson meiddur? Trúi því ekki. En haltu áfram að skemmta þér og birgðu þig upp af dönskum krónum þegar tækifæri gefst.

Anonymous said...

heppin þú með að hafa beðið, 25kr er bara rugl fyrir eina krone...!
Gamangaman að lesa:)

Unknown said...

Þvílíkt fjármálaævintýri, get séð þig í anda þeysandi á hjólhestinum til þess að ná í peningana, hjólandi í myrkrinu, verður að komast yfir aurana því ef ekki áttu á hættu að kafna í hrúgu af óhreinum fötum og þá er lítið annað eftir en að fara og finna lækjarsprænu og þvottabretti og handþvo allt heila klabbið.
:*