Sunday, November 30, 2008

Fyrsti í aðventu

Hæhæ
Gleðilega aðventu

Jæja, hvað er ég búin að gera síðan ég skrifaði síðast...

Á mánudaginn síðasta fórum við í International class í smá ferðalag, fórum til Hirtshals og skoðuðum vita og fórum á Nordsöen safnið. Það er svona bygging full af fiskabúrum sem innihalda að sjálfsögðu fiska. Ég set inn einhverjar flottar myndir þaðan.




Á leiðinni til Hirtshals, þetta er mesti snjór sem ég hef séð síðan ég kom til Danmerkur, jólalegt finnst ykkur ekki?




Vitinn


Elín og þorskur, ef til vill jólaþorskurinn


Sigurlaug lúða

Svo á fimmtudaginn fórum við útlendingarnir til listakonu og vorum hjá henni megnið af deginum að teikna og mála. Það var geggjað stuð. Ég málaði mynd af fjöllum og trjám og auðvita fullt af snjó og svo manni að drukkna í vök, en engar áhyggjur honum er bjargað.

Ég verð líka að segja ykkur frá því að ég var að fræða nokkra Dani um íslensk jól og jólasveinana og svona, 13 jólasveinar sem stela kertum frá börnum, stela mat, skella hurðum og gægjast á glugga. Skiljanlega fannst þeim það furðulegt og ekki síður furðulegt þegar ég sagði þeim frá Grýlu, Leppalúða og jólakettinum...."the santa clauses have parents who are dead but if the children wont behave they will wake up from dead, haunt them and eat them"..."and the parents of the santa clauses have a cat, called the christmas cat, and if you don't get new clothes before christmas the cat will come and eat you" Já og svo bara gleðileg jól!

En núna er aldeilis farið að huga að jólum hérna í skólanum, við erum búin að vera að skreyta matsalinn og græna herbergið þessa helgi. Það er komið risastórt jólatré inn í græna herbergið og kominn aðventukrans og allt. Svo í dag var svona jólaglögg og eplaskífur í miðdegiskaffinu, eplaskífurnar voru mjög gómsætar en jólaglöggin var viðbjóðsleg. Þetta er svona heitt rauðvín með kanis og rúsínum og ég veit ekki hvað og hvað, ódrekkandi sull, plööö.

Við í Adventure erum að fara til Noregs eftir viku! Við getum farið á tvö skíðasvæði, bæði í Hafjell og Kvitfjell, held þetta sé skrifað svona. Við erum held ég 19 sem erum að fara og við munum gista í tveim kofum. Þessir kofar eru víst eitthvað voða flottir. Við munum verða þar fram á föstudag þannig að við getum verið 4 daga á skíðum. Það verður frábært, ég hlakka svo til að komast í snjóinn.

Ég man ekki eftir fleiru að skrifa...ég hlakka bara ótrúlega mikið til að koma heim. Það eru 22 dagar!

En ég bið bara að heilsa elskurnar mínar
Sigurlaug

6 comments:

Unknown said...

Jibbí hún bloggaði. Annars verð ég að segja að jólaþorskurinn er einhver besta og jólalegasta teiknimynd sem ég hef um ævina séð.

Anonymous said...

haha frábær lýsing á Grýlu og Leppalúða á ensku :)

Kv. Snæfríður

Unknown said...

Hey þú spriklandi þarna í útlöndum. Ég var að senda þér tölvupóst!

Sigurlaug said...

Já ég er sammála, það er hálft gaman ef það er enginn jólaþorskur.

Haha já það var svo fyndið að sjá svipinn á Dönunum þegar ég var að lýsa íslensku jólasveinunum, ótrúlega fyndið!

Anonymous said...

haha. já spes að útskýra íslensku jólasveinana í útlöndum;)
aw mig langar líka á skíði:)

Anonymous said...

lúðumyndin er btw ótrúlega fyndin:)