Monday, November 24, 2008

Samantekt

Halló

Þá er rifja upp svona það helsta frá vikunni sem er að líða...

...þessi vika er aðallega búin að fara í það að undirbúa Vinahelgina sem var þessa helgi, þá gátu nemendur boðið vinum sínum í heimsókn og það var svona dagskrá um helgina. Eitt af því sem var á dagskrá um helgina var að sýna „show-ið“ sem við erum búin að vera að undirbúa síðustu vikur. Þráðurinn í sýningunni er að lítill strákur sofnar og fer að dreyma, fyrst dreymir honum vel, fullt af trúðum og húllumhæi, svo breytist draumurinn yfir í martröð og þá fara skuggalegar fígúrur að dansa og óhugnarlegum myndum varpað upp á tjald og svo breytist þetta aftur yfir í góðan draum og þá dansa allir riverdans og annan dans og svo er það búið. Það sem ég geri í sýningunni er að ég er í stomphópnum, þ.e. ég held á priki og lem því í gólfið og svo dansa ég í dönsunum þar sem allir nemendurnir dansa. En sem sagt fór megnið af vikunni í að undirbúa sýninguna.

Endirinn á showinu, rosaflottur endir


Á föstudaginn í Adventure áttum við að hittast úti á Basecamp í hlýum fötum,
meira fengum við ekki að vita. Við mættum þar og það var eins gott að vera í hlýum fötum því það var skítakuldi. Svo fór Brian kennari að tala um að hann hefði bara verið að spá í að við kveiktum bál og grilluðum okkur snúbrauð og hefðum það kósí, en svo hefði honum snúist hugur. Þá dróg hann upp sundskýlu og handklæði og sagði að við værum að fara að baða okkur í sjónum og við ættum að fara og ná í sundföt og handklæði og vera tilbúin eftir 10 mínútur. Brrrrrr það var svo kalt! Við keyrðum út á strönd og þá var bara ákveðið, eftir 2 mínútur eru allir tilbúnir til að hlaupa út í sjó. Það var svo erfitt að fara úr hlýu úlpunni minni og vettlingunum, úff hvað það var kalt, og standa svo hálfnakinn og bíða eftir því að hlaupa út í sjó. Svo rann stundin upp og allir þustu úr í sjó, ég óð reyndar ekki dýpra en upp á mið læri, það var alveg nóg fyrir mig. Svo hlupum við bara aftur upp að bíl og flestir fóru strax að finna hlýu fötin, en þetta var greinilega ekki nóg fyrir suma því nokkrir fóru aðra ferð, brjálað fólk.

Á stöndinni

En svo um helgina var Venneweekend eða vinahelgi. Þá fjölgaði heldur betur í skólanum. Á laugardeginum var svona aðaldagskráin. Þá hafði nemendum og gestum verið skipt í 22 lið sem hlupu svo á mismunandi stöðvar allt í kring um skólann. Þar sem ég var ekki að fá neina gesti þessa helgi var ég beðin um að hjálpa til. Það sem ég gerði var að standa vörð á einni stöðinni, þ.e. taka á móti liðunum og útskýra hvað þau áttu að gera og taka tímann og svo framvegis. Stöðin sem ég var á hét Opfindelsen af hjulet og fólst í því að tvö lið kepptust um að klára þar til gerða braut á sem skemmstum tíma. Bæði lið fengu hjólbörur og svo var einn sem átti að sitja í hjólbörunum á meðan annar keyrði þær í gegn um brautina. Sá sem sat í hjólbörunum átti svo að gera ýmislegt, í fyrstu umferð átti að teikna mynd sem þeim var sýnd, í næstu átti að klæða sig í föt sem búið var að taka til, í þriðju umferð fékk viðkomandi legómódel og átti að byggja nákvæmlega eins módel og í síðustu umferðinni átt i að halda á skál fullri af vatni og borða 5 þurrar kexkökur, auðvita allt á meðan viðkomandi sat í hjólbörum. Þetta var mjög fínt og ótrúlega fyndið að sjá liðin fara í gegn um þetta, en það var líka svo margar stöðvar sem mig hefði langað að fara á, eins og t.d. að keyra svona hálfgerðum go-kart bíl og margt fleira. En þetta var samt alveg gaman og það var ágætt að geta hjálpað til. En eftir þetta var svo komið að frumsýningu á show-inu. Hún gekk bara ljómandi vel og fólk tók mjög vel í þetta, mér tókst að lemja prikinu nokkuð taktfast og vel í gólfið svo þetta var bara gaman.

Eftir show-ið fórum við Elín eiginlega bara strax að taka okkur til fyrir partýið sem var svo um kvöldið, það byrjaði reyndar kl. 18. Í þessu partýi, eins og flest öllum öðrum, var þema. Þemað að þessu sinni var Back to the Future þannig að allir áttu að klæða sig í föt sem höfðu verið í tísku á árunum frá 1950-1990. Ég og Elín skelltum okkur í 80‘s gallan, sundbol, leggings, legghlífar og víða skyrtu utan yfir. Svo var auðvita brjáluð hárgreiðsla og förðun, við vorum sko flottar. En partýið var ótrúlega skemmtilegt og við fengum meira að segja DJ Freedom til að spila (hann ku vera einhver voða flottur plötusnúður hérna í DK).

Ég tilbúin í 80's gallanum, og Jens Peter á bak við


Sunnudagurinn var svo tekinn snemma, ég fór á fætur rétt fyrir átta því ég, Jens Peter og Henrik vinur hans vorum að fara alla leið til Kolding til að spila AirSoft eða Hardball eða hvað það nú heitir. Já og Kolding er ca. 300 km frá Brönderslev. En þetta Airsoft...eitthvað sem ég hafði aldrei prófað áður. Þetta er mjög svipað Painball fyrir þá sem vita hvað það er. Þá er bara fullt af fólki (í þessu tilfelli nánast eingöngu strákar en who cares) sem er í hermannagalla, með grímu og er vopnað byssu sem skítur svona litlum kúlum. Svo er fólkinu skipt í tvö lið og markmiðið er að skjóta andstæðinginn. Það sem var hvað sérkennilegast við þetta var að í þetta skipti var þetta svona Jóla-skytterí, svo að allir voru með jólasveinahúfur eða jafnvel í jólasveinabúning komplett. Þannig að þegar við komum sáum við bara fullt af jólasveinum með grímu og byssu...jólaandinn svoleiðis sveif yfir vötnum. En svo vorum við að spila þetta megnið af deginum, vorum svo komin heim rétt um níu leitið. Þetta var gaman, ótrúlega mikið af fólki sem var saman komið þarna til að skjóta hvort annað, örugglega um 100 manns...og þar af 2 stelpur. Annað sem mér fannst mjög undarlegt þarna fyrir utan alla hryðjuverkajólasveinanna var að þegar fólk var að fara heim þakkaði það auðvita fyrir sig og sagði “tak for i dag, det var hyggeligt“, já ótrúlega huggulegt að skjóta hvort annað.

Svona var aðkoman, fullt af vopnuðum jólasveinum

Komin í herklæðin og með jólasveinahúfu að sjálfsögðu

Svo í dag byrjaði hreingerningavaktin mín, já nú þarft ég að vakna 20 mínútum fyrr á morgnanna en ég gerði áður til þess að fara að þrífa í græna herberginu. Svo í dag fórum við í International tíma í svona Road trip til Hirtshals, skoðuðum vita og fórum á Nordsøen aquarium. Þar er allt fullt af risastórum fiskabúrum fullum af mismunandi fiskum.

Það er svona það helsta, já og í dag fórum við Elín niðrí bæ og keyptum okkur lestarmiða til Kaupmannahafnar. Við förum 09:30 á sunnudeginum 21. desember, þ.e. 28 dagar þar til! Og svo eru bara tvær vikur þar til í Adventure förum í skíðaferð til Noregs...jíííííí

En ég ætla að láta þetta gott heita, ég bið ykkur bara vel að lifa

Góðar stundir

Sigurlaug

2 comments:

Unknown said...

Hryðjuverka-jólasveinar. Hvað er jólalegra? Annars bara gaman að sjá að þetta gangi vel og það biðja allir að heilsa, t.d Sóley, Jóna frænka, Freyja og ýmsir fleiri. Góðar stundir. ps, það er jólasnjór hérna.

Unknown said...

Jólasveinarnir Hurðastafur og Rasskellir hafa verið þarna í góðu stuði vígbúnir, tilbúnir að sýna óþekku krökkunum hvar Davíð keypti ölið, Davíð kaupir eflaust öl núna á mjög vafa sömum stöðum þar sem hann má varla sjást á götum úti án þess að vera laminn.
Ef þú ert ekki myndarleg í þessum 80's galla þá verð ég væntanlega að fara og fletta orðinu uppí oðrabók, því þá veit ég ekki hvað það þýðir.
Tótallí awsome to the max.
Góða skemmtun síðan í Norge.
:*