Það hefur aldeilis margt á daga mína drifið síðan ég skrifaði hérna síðast.
Við skulum bara byrja á byrjuninni.
Á föstudaginn í síðustu viku var partý, eitt af fjölmörgum. Og eins og venjulega var eitthvað svona þema í partýinu og þar sem hrekkjavakan var nýafstaðin var ákveðið að halda hrekkjavökupartý. Eins og í fyrri partýum þar sem eitthvað svona sérstakt þema er fyrirfram ákveðið, þá lágum við Elín ekki á liði okkar og klæddum okkur upp í alveg hreint ótrúlega flotta og ógnvekjandi búninga með hárgreiðslu og förðun í stíl. Myndirnar segja allt sem segja þarf.


En svo á laugardagsmorgninum vöknuðum við Elín eldhressar (án gríns) því kl. 12:30 fórum við í þríatlon, 15% Iron man. Þríatlon er þegar bæði er synt, hjólað og hlaupið, í þessari röð, og vegalengdirnar í þessu 15% þríatloni eru eftirfarandi: 600 m syndandi, 32 km hjólandi og 6,3 km hlaupandi. Þetta náðum við að klára á 2 tímum og 23 mínútum. Það sem mér fannst erfiðast var þegar við vorum að hjóla því það var svo mikill vindur, svo það var heilmikið púl að fara upp brekkur (já það voru brekkur þar sem við vorum að hjóla, believe it or not), með vindinn í andlitið. En það var líka svakalega erfitt að byrja að hlaupa eftir að hafa hjólað 32 km, fæturnir voru eins og grjót. En mikið var gott þegar maður var búinn með þetta, úff. Þá fórum við Elín bara og fengum okkur ristuð hafragrjón og jógúrt og svo dröttuðumst við inn í eina af kennslustofunum með dýnur, sængur og kodda og lágum þar rotaðar fyrir framan sjónvarpið alveg fram að kvöldmat.
En svo leið vikan bara og ég taldi dagana í það að hitta Fannar minn. Hann kom með lestinni frá Kaupmannahöfn og endaði í Álaborg um miðnætti á fimmtudeginum og þar átti hann að bíða í rúma fjóra tíma til þess að taka rútu frá Álaborg til Brönderslev. Á fimmtudagskvöldinu var ég að segja honum Nicolas vini mínum frá þessu og hann sagðist þekkja það af eigin reynslu að það væri ömurlegt að hanga svona lengi á lestarstöð, ég tali nú ekki um að nóttu til, svo að hálftíma seinna kom hann til mín og sagðist vera búinn að redda bíl og að hann ætlaði að skutla mér til Álaborgar til að ná í Fannar :) Já hann Nicolas er algjört yndi. Svo að klukkan hálftólf fórum við út í bílinn hennar Tönju og brunuðum til Álaborgar. Ég segi brunuðum því við vorum á 130 km hraða sem er fullkomlega löglegt hérna. Svo kom Fannar með lestinni og mikið var nú gott að sjá hann aftur :) Á föstudeginum kom hann svo með mér í tíma. Eftir hádegi var Adventure og við fórum út í skóg á fjallahjólum. Þegar við vorum út í skógi þurfit Fannar greyið að nauðhemla því hann sá ekki keðju sem var fest milli tveggja trjáa (og þessi keðja var svona fallega appelsínugul, alveg eins og öll laufin í kring) svo Fannar flaug af hjólinu sínu og meiddi sig í öxlinni. Við fórum því til Hjörring sem er ca. 20 km frá Brönderslev á sjúkrahúsið þar og þá kom í ljós að Fannar var viðbeinsbrotinn. En það er ekkert hægt að gera við því svo hann fékk bara fatla og svo Farvel.
En helgin leið svo bara ótrúlega hratt og áður en við vissum af var ég að fylgja honum aftur á lestarstöðina.
En ég er að fara í handbolta eftir 5 mínútur svo það er best að ég fari að taka mig til.
Ég bið bara að heilsa ykkur öllum
Kys og kram
Sigurlaug
4 comments:
Hopp og hí og hamagangur í Brönderslev. Gott að allt gengur vel en verra ef þú sendir gestina sem þig heimsækja stórslasaða til baka.
Já Einar, slíkar voru mótökurnar í baunalandinu að það stór sér á mér, lurkum laminn, með kúlu á höfði og nuddsár á hnjánum. En ég kvarta samt ekki, frábær ferð, fékk þarna ljómandi gott tækifæri til þess að kynna mér heilsugæsluna í Danmörku sem er alls ekki á verri endanum. Frábær helgi Sigurlaug, hefði haft gaman af því að koma aftur og ekki síður að fá að vera lengur, en það var ekk á kosið núna.
Núna bíð ég bara blýspenntur eftir því að fá að sjá þig um jólin, hef ekki verið mikið jólabarn í seinni tíð, en tjahh... ég hef ástæðu til þess núna.:*
ætli hann fannar sé kannski með brotna claviculu?;)
en já svona í sambandi við þarna trí-eitthvað þar sem þú varst að synda og hjóla og hlaupa (fjúff hvað ég hefði ekki meikað þetta) þá syntum við arnhildur og sigrún 1km um daginn á 25 mín. haha svaka árángur er það ekki? djók.
en já ég hlakka til að sjá þig í des:) er ekki sjallinn málið laugardaginn 20.des?;)
Sarışın yada esmer fark etmeksizin birlikte yaptıkları olgun porno skandalını her zaman çok zevkli bir hale getirmiş oldular bunlar.
Post a Comment