Saturday, December 13, 2008

...ein vika eftir!

Halló
Þá er ég komin aftur til Danmerkur eftir ótrúlega skemmtilega skíðaferð til Noregs.
Það var reyndar ekkert svo gaman á sunnudeginum þegar við vorum að leggja í'ann því þá var komið að því að kveðja Lori og Jeppe og Ungverjana...ég á rosalega erfitt með að kveðja fólk, tárin streymdu í stríðum straumum. En eftir fullt af knúsum og kossum og tárum þá lögðum við af stað til Hirtshals á tveim litlum rútum og einum fólksbíl, við vorum 19 held ég í allt. Svo fórum við í ferjuna sem siglir frá Hirtshals til Larvik í Noregi. Þetta er víst einhver ný ferja þannig að í stað þess að taka 8-9 tíma að komast til Larvik þá tók ferðin ca. þrjá og hálfan tíma. Og þegar við komum þá var snjór!! Jeeeiiiiii.
Svo þurftum við að keyra til Osló sem tók alveg slatta langan tíma, þar náðum við í Anders sem er svona hálfgerður kennari í skólanum, eða hann er reyndar ekki kennari núna, hann var það. En hann er svona viðloðandi samt, hann kom líka með til Frakklands í haust. En svo frá Osló keyrðum við til Hafjell, það tók líka alveg slatta langan tíma. Þegar við komum til Hafjell náðum við í lyklana að íbúðunum sem við bjuggum í og fórum svo að leita að íbúðunum. Umhverfinu þarna í Hafjell má lýsa þannig að þetta eru mörg hús/kofar í skógivaxinni hlíð og svo eru skíðabrautir þar inn á milli. Íbúðirnar sem við vorum í voru í sama húsinu, og húsið var upp í brekku. Og rúturnar drifu ekki þangað upp. Við þurftum því að setja keðjur á, það var gaman, mér fannst ég næstum því vera á Íslandi í smá stund. En eftir að hafa komið keðjunum á þá var ekkert mál að komast upp að húsinu. Við vorum með tvær íbúðir og það voru 9 manns í íbúðinni sem ég var í. Og þetta var ekkert smá flott þarna inni, það voru tveir arinar, heitur pottur, sauna, tveir flatskjáir og ég veit ekki hvað og hvað.
En svo fengum við okkur aðeins í svanginn og komum okkur fyrir og svo var bara farið að sofa, enda þurfti fólk að vera tilbúið að fara á skíði kl. 9:00 um mánudagsmorgunin.
Svo um mánudagsmorguninn fórum við niður í afgreiðsluna þarna í Hafjell og fengum skíði og snjóbretti og hjálma og alles. Svo var bara farið upp í lyftu og látið sig flakka. Þetta er mjög stórt svæði með mörgum flottum brekkum og líka svona Offpist eða hvað það nú heitir, þá er maður að keyra utan brautar bara milli trjáa og svona, það er mjög gaman.
Það var svo flott þarna, svona Winter Wonderland, allt fullt af háum grenitrjám sem voru alveg þakin snjó, svoooo flott.
Á mánudagskvöldinu fórum við til Lillehammer í íþróttahöll og þar var klifurveggur sem er 21 metra hár!! Og ég fór alla leið upp! Úff ég var þreytt í höndunum eftir það, en það var svo gaman að ég vildi reyna aftur, þá komst ég bara rúmlega hálfa leið upp. En það var ótrúlega gaman.
Svo var bara aftur skíði á þriðjudeginum og miðvikudeginum, í Hafjell, og á miðvikudagskvöldinu fórum við á Bobbsleða!!! Það var ein ferð á mann, og það voru 4-5 sem fóru saman í sleða. Það er langt síðan ég hef fengið jafn mikinn fiðring í magann. Ég var í hóp nr. 3 þannig að við sáum þegar fyrstu tveir hóparnir fóru. Jeremías! Sleðarnir fara á 90 km hraða, ég held að brautin sé 19 km þannig að ferðin tekur u.þ.b. 70 sek. En þegar ég sá fyrsta sleðann fara, þá fékk ég svo mikinn fiðring í magann, ég bara hló og vissi ekki hvernig ég átti að vera út af spenningi. Þegar sleðinn nálgast heyrist þvílíkar drunur og þegar hann fer framhjá sér maður bara svona blátt strik. Og þegar komið var að mínum hóp fórum við með svona litlum míní-bus upp brekkuna og á leiðinni í bílnum var ég að fara yfir um af spenningi! Svo fengum við hjálma og kallinn sem sat fremstur hjá okkur útskýrði fyrir okkur hvernig við ættum að sitja og svona. Þetta var ekki þannig að við ættum að hlaupa og hoppa upp í sleðann heldur settumst við bara og kallinn ýtti okkur af stað og settist svo sjálfur fremst. Þetta var svo gaman, ég var hlæjandi/öskrandi allan tímann og hélt áfram að hlæja ca. 2 mínútum eftir að við vorum búin. Frábært.

Svo á fimmtudeginum fórum við í Kvitfjell sem er held ég svona 50 km frá Hafjell. Það er aðeins minna umfangs en Hafjell en er samt alveg frábært skíðasvæði.

Það var svo gaman á skíðum, ég elska að vera á skíðum. Ég held að ég hafi líka fengið betri tækni því að Jens og Anders kennarar voru með smá svona kennslu þarna einhvern daginn og ég var svona að reyna að vinna með þetta sem þeir voru að segja. Ég elska að vera á skíðum!!!

Svo í dag þegar við vorum að fara heim stoppuðum við í Lillehammer og sáum skíðastökkpallana tvo sem voru notaði á Vetrar-ólympíuleikunum '94 og eru enn notaðir, það voru meira að segja nokkrir gaurar að stökkva, úff hvað þeir flugu langt.


Á skíðum :)


21 metra hár klifurveggur


Að klifra





Winter wonderland






Eldhúsborðið í íbúðinni




og baðkarið í íbúðinni





Stuð í rútunni - Sune, Linn og Janus


Bobbsleðinn góði



En nú er ég komin aftur í skólann, það er bara ein vika eftir og það verður einhver svona sérstök dagskrá alla vikuna held ég sem endar að sjálfsögðu á kveðjupartýi á föstudeginum. Það eru 9 dagar í að ég komi heim, 9 dagar! Ég hlakka svo til :D Í ykkar sporum myndi ég fara að undirbúa mig fyrir risaknús.

Ég fékk heimsókn í dag frá Kidda frænda og Eddu :) Ég gat sýnt þeim skólann og svona. Við gerðum samkomulag um það að næst þegar ég kem til Danmerkur mun ég skipuleggja ferðina þannig að ég geti heimsótt þau því að ég mun því miður ekki geta heimsótt þau í þetta skiptið. En ég á án efa eftir að koma hingað aftur og hver veit, kannski ég fái mömmu til að koma með :)


En ég held að ég láti þetta vera nóg í bili
Ég bið ykkur bara vel að lifa og ég sendi kveðju í dalinn

Sigurlaug

Saturday, December 6, 2008

Á leiðinni til Noregs!

Sæl

Það er allt orðið svo jólalegt í herberginu okkar. Ég og Elín erum búinar að vera að lita jólamyndir í öllum okkar frítímum, eða svona nokkrum allavega, og erum búnar að hengja þær upp. Það er kominn jólakrans (eða mynd af jólakransi) á hurðina sem snýr fram á gang og svo eru komnir jólasveinar, hreindýr, Jesúbarnið og ég veit ekki hvað og hvað á skáphurðirnar okkar og svo eru fínu jólapokarnir mínir á klósetthurðinni og í glugganum. Svo er ég búin að prenta út myndir sem Einar sendi mér frá því þegar þau heima voru að skera út laufabrauð þannig að núna þegar ég sit hérna við skrifborðið mitt þá sé ég alla Urðafamelíuna með jólasveinahúfur vera að skera út
laufabrauð :) Svo í gærkvöldi vorum við Hrefna, Elín, Walker, Sune, Ditte og Malene að skreyta piparkökur. Við Íslendingarnir áttum auðvita hugmyndina og vorum búnar að koma okkur þægilega fyrir í öðru eldhúsinu með jólalög og alles og þetta leit auðvita svo vel út að fólk slæddist að og skreytti með okkur.

Walker bjó til glæsilegan jólahund - þetta var svona svar við íslenska jólakettinum


Hluti af skreyttu piparkökunum




Hrefna og Malene niðursokknar


Ditte, Sune, Mat og Walker

Piparkökurnar mína setti ég svo á disk inn í herbergið þannig að fólk getur fengið sér ef það vill...það eru ekki margar eftir. Það er semsagt orðið mjög jólalegt hérna hjá okkur í herbergi 33. Svo til að setja punktinn yfir i-ið þá eru fjögur jóladagatöl hérna í herberginu en þau tilheyra reyndar öll Lísu. Hún er með eitt súkkulaðidagatal, eitt skafdagatal, eitt svona nammi dagatal og einn svona pakkadagatal...ég er ekkert bitur.
En talandi um jólin, í söngtíma í gær þá sungum við Heims um ból!!! Og það var 5. desember! Ég gapti, maður syngur ekki Heims um ból þegar enn eru 20 dagar til jóla. Ég var svo fegin að þetta var bara á ensku, þá var það ekki alveg eins heilagt. Við höfum líka sungið Guðs kristni í heimi, nema á ensku auðvita þannig að það var ekki eins heilagt.

Núna á þriðjudaginn fórum við í Adventure-hópnum í skóg sem er ca. 50 mín héðan, ég man ekki hvað hann heitir, Rold skove eða eitthvað þess háttar. Þar fórum við góðan hring á fjallahjólum, minnir að Brian kennari hafi sagt að þetta væru 14 km. En við lögðum af stað klukkan hálf fjögur eða svo og ferðin út í skóginn tók tæpan tíma þannig að þegar við komum var eiginlega orðið alveg dimmt. Það var líka mjög blautt og stígurinn sem við vorum að hjóla á var svo blauturá sumum stöðum að hjólin sukku bara niður í leðjuna, þá var mjög erfitt að hjóla. En þetta var mjög gaman.

Í gær fórum við í International class í heimsókn heim til Hans sem er International kennarinn okkar. Það var líklega í síðasta skiptið sem við höfum International tíma því að það fer ört fækkandi í hópnum, Adams er farinn heim til Uganda (eða hann er að reyna það, held að hann sé fastur í Kaupmannahöfn vegna vegabréfsvandræða), Ali og Hisham eru farnir heim til Oman, svo fara Mat og Gabor heim til Ungverjalands á mánudaginn og við Elín og Walker verðum í Noregi alla næstu viku. Það var samt ótrúlega gaman að heimsækja Hans, hann bauð okkur upp á æbleskiver sem eru svona litlar bollur sem maður dýfir í sultu og svo söng hann meira að segja fyrir okkur lag.



Við sem eftir erum í International class - heima hjá Hans -
Mat, Toms, Gabor, Walker, ég, Matíss og Elín

En það er svo skrítið að vera að fara að kveðja alla, Lori og Jeppe fara til Ástralíu á mánudaginn og þá verð ég í Noregi þannig að ég þarf að kveðja þau á morgun, og Ungverjana líka.

Núna í þessari viku erum við búin að vera að undirbúa Noregsferðina. Við erum held ég 20 sem förum, þar af tveir kennarar, og við verðum í tveim kofum. Við í mínum kofa erum svo búin að funda um það hvað eigi að borða því við fengum pening til að kaupa mat og svo sjáum við alfarið um eldamennskuna. Við skrifuðum heillangan innkaupalista og fórum svo út í Nettó í gær og keyptum inn, ég held að allt í allt hafi þetta kostað 1830 danskar sem eru tæpar 40.000 íslenskar. En við erum nú 10 sem erum að fara að borða saman í 5 daga.
Ég hlakka svo til!! Það er samt svo skrítið, eftir að við komum heim er bara ein vika eftir í skólanum og svo er það bara heim! Det er utruligt!

Í dag er Family day (fjölskyldudagur) þannig að langflestir nemendurnir fengu heimsókn frá foreldrum og systkinum. Við útlendingarnir sem fengum ekki heimsókn erum samt bara stór fjölskylda þannig að við sátum bara saman í matnum :)

En ég held að það sé gáfulegt að fara að huga að því að byrja að pakka niður, við leggjum af stað um kl. 10:00 í fyrramálið og förum með ferju frá Fredrikshavn í hádeginu.
Ég mun svo skrifa ferðasöguna næstu helgi.

Ég bið bara að heilsa öllum
Sigurlaug