Það er allt orðið svo jólalegt í herberginu okkar. Ég og Elín erum búinar að vera að lita jólamyndir í öllum okkar frítímum, eða svona nokkrum allavega, og erum búnar að hengja þær upp. Það er kominn jólakrans (eða mynd af jólakransi) á hurðina sem snýr fram á gang og svo eru komnir jólasveinar, hreindýr, Jesúbarnið og ég veit ekki hvað og hvað á skáphurðirnar okkar og svo eru fínu jólapokarnir mínir á klósetthurðinni og í glugganum. Svo er ég búin að prenta út myndir sem Einar sendi mér frá því þegar þau heima voru að skera út laufabrauð þannig að núna þegar ég sit hérna við skrifborðið mitt þá sé ég alla Urðafamelíuna með jólasveinahúfur vera að skera út
laufabrauð :) Svo í gærkvöldi vorum við Hrefna, Elín, Walker, Sune, Ditte og Malene að skreyta piparkökur. Við Íslendingarnir áttum auðvita hugmyndina og vorum búnar að koma okkur þægilega fyrir í öðru eldhúsinu með jólalög og alles og þetta leit auðvita svo vel út að fólk slæddist að og skreytti með okkur.
Hrefna og Malene niðursokknar
Piparkökurnar mína setti ég svo á disk inn í herbergið þannig að fólk getur fengið sér ef það vill...það eru ekki margar eftir. Það er semsagt orðið mjög jólalegt hérna hjá okkur í herbergi 33. Svo til að setja punktinn yfir i-ið þá eru fjögur jóladagatöl hérna í herberginu en þau tilheyra reyndar öll Lísu. Hún er með eitt súkkulaðidagatal, eitt skafdagatal, eitt svona nammi dagatal og einn svona pakkadagatal...ég er ekkert bitur.En talandi um jólin, í söngtíma í gær þá sungum við Heims um ból!!! Og það var 5. desember! Ég gapti, maður syngur ekki Heims um ból þegar enn eru 20 dagar til jóla. Ég var svo fegin að þetta var bara á ensku, þá var það ekki alveg eins heilagt. Við höfum líka sungið Guðs kristni í heimi, nema á ensku auðvita þannig að það var ekki eins heilagt.
Núna á þriðjudaginn fórum við í Adventure-hópnum í skóg sem er ca. 50 mín héðan, ég man ekki hvað hann heitir, Rold skove eða eitthvað þess háttar. Þar fórum við góðan hring á fjallahjólum, minnir að Brian kennari hafi sagt að þetta væru 14 km. En við lögðum af stað klukkan hálf fjögur eða svo og ferðin út í skóginn tók tæpan tíma þannig að þegar við komum var eiginlega orðið alveg dimmt. Það var líka mjög blautt og stígurinn sem við vorum að hjóla á var svo blauturá sumum stöðum að hjólin sukku bara niður í leðjuna, þá var mjög erfitt að hjóla. En þetta var mjög gaman.
Í gær fórum við í International class í heimsókn heim til Hans sem er International kennarinn okkar. Það var líklega í síðasta skiptið sem við höfum International tíma því að það fer ört fækkandi í hópnum, Adams er farinn heim til Uganda (eða hann er að reyna það, held að hann sé fastur í Kaupmannahöfn vegna vegabréfsvandræða), Ali og Hisham eru farnir heim til Oman, svo fara Mat og Gabor heim til Ungverjalands á mánudaginn og við Elín og Walker verðum í Noregi alla næstu viku. Það var samt ótrúlega gaman að heimsækja Hans, hann bauð okkur upp á æbleskiver sem eru svona litlar bollur sem maður dýfir í sultu og svo söng hann meira að segja fyrir okkur lag.

Við sem eftir erum í International class - heima hjá Hans -
Mat, Toms, Gabor, Walker, ég, Matíss og Elín
Mat, Toms, Gabor, Walker, ég, Matíss og Elín
Núna í þessari viku erum við búin að vera að undirbúa Noregsferðina. Við erum held ég 20 sem förum, þar af tveir kennarar, og við verðum í tveim kofum. Við í mínum kofa erum svo búin að funda um það hvað eigi að borða því við fengum pening til að kaupa mat og svo sjáum við alfarið um eldamennskuna. Við skrifuðum heillangan innkaupalista og fórum svo út í Nettó í gær og keyptum inn, ég held að allt í allt hafi þetta kostað 1830 danskar sem eru tæpar 40.000 íslenskar. En við erum nú 10 sem erum að fara að borða saman í 5 daga.
Ég hlakka svo til!! Það er samt svo skrítið, eftir að við komum heim er bara ein vika eftir í skólanum og svo er það bara heim! Det er utruligt!
Í dag er Family day (fjölskyldudagur) þannig að langflestir nemendurnir fengu heimsókn frá foreldrum og systkinum. Við útlendingarnir sem fengum ekki heimsókn erum samt bara stór fjölskylda þannig að við sátum bara saman í matnum :)
En ég held að það sé gáfulegt að fara að huga að því að byrja að pakka niður, við leggjum af stað um kl. 10:00 í fyrramálið og förum með ferju frá Fredrikshavn í hádeginu.
Ég mun svo skrifa ferðasöguna næstu helgi.
Ég bið bara að heilsa öllum
Sigurlaug
4 comments:
Heiiijjaaa Norge.
fjúff, eins gott að jólalögin voru ekki sungin svona snemma á hinni heilögu tungu okkar, en þess í stað á hinni andkristnu engilsaxnesku í staðinn, fjúff segi ég bara.
ég var nú bara að lesa bloggið þitt og þar er staðhæfing þess efnis að grýla og leppalúði séu dauð...HA??
ha en god dag!
Hlakka til að heyra ferðasöguna :) kv. Snæfríður
Post a Comment