Jæja, þá er ég komin til Danmerkur. Ferðin gekk bara nokkuð vel og mér til óvæntrar ánægju var ég samferða Önnu og Simma en þau voru á leiðinni til Svíþjóðar.
Það var lagt af stað frá Akureyrarvelli
kl. 15:30 en það þurfti reyndar að millilenda í Keflavík til að taka eldsneyti og ná í fleiri ferðalanga. Við stoppuðum því í dágóða stund á Keflavíkurflugvelli en máttum ekkert fara út úr vélinni. Svo lögðum við loksins af stað aftur og lentum í Kaupmannahöfn um 22:30 í 17 stiga hita. Svo þurfti bara að bíða eftir farangrinum eins og gengur og gerist, öllum mínum 32 kílóu

m og þegar þau voru komin gat ég farið að leita að Mette og aðstoðarkonunni hennar sem ætluðu að hýsa mig þessar tvær nætur áður en ég leggði af stað til Brønderslev. Þegar menntaskólakórinn fór til Danmerkur gisti ég heima hjá Mette. Hún er, að ég held, eina manneskjan sem ég þekki í Kaupmannahöfn og hún er algjörlega búin að bjarga mér hérna á þessu ferðalagi mínu. Mange tak Mette
J Við skemmtum okkur mjög vel í gær því við fórum ásamt Louise aðstoðarkonu í Experimentarium sem er svona safn með allskonar skemmtilegum hlutum og þrautum sem maður getur alveg gleymt sér í. Svo um kvöldið höfðu foreldrar Mette boðið vinafólki sínu í grill og það var engin smá veisla, þar sem ég m.a. fékk að smakka apríkósugos, áhugavert nokk. Þau grilluðu svínakjöt, kjúkling og pylsur og í eftirrétt voru pönnukökur og grillaðir bananar. Góð uppskrift af grilluðum banana er: 1 stk. grillaður banani, púðursykur, súkkulaðisósa og slatti af ís ofaná. Nammi namm.
Síðan um kvöldið fórum við á rúntinn, athugið: á rúntinn, ekki að keyra, og ætluðum fyrst á einhvern bar sem Mette vissi um en þegar við komum þangað kom í ljós að þessi bar var víst endastöð Gleðigöngunnar sem haldin hafði verið í Kaupmannahöfn fyrr um daginn. Við ákváðum því að fara bara inn á lítið kaffihús og vorum þar um kvöldið.
Svo var vaknað klukkan 7:00 í morgun því að lestin sem ég átti að fara með átti að leggja af stað
klukkan 8:50. Við fórum tímanlega af stað til Hovedbanegården og þau hjálpuðu mér að koma öllum töskunum að rétta vagninum. Svo var bara að kveðja og þjóta af stað til Brønderslev. Lestarferðin var bara mjög fínt en ég verð að segja að lestir eru ekki mjög heppilegar ef maður er með mjög mikið af far-angri. En þetta reddaðist allt og ég komst til Brønderslev á rúmum 5 klukkutímum. Svo þurfti ég að drösla öllum farangrinum niður nokkrar tröppur og það var mjög svo erfitt svo ég neiddist til að fá leigubíl til að skutla mér síðasta spölinn.
Núna er ég svo komin í skólann og er búin að hitta annan herbergisfélagann sem ég mun vera með í vetur. Hún heitir Lori og er frá Ástralíu. Hún var hérna síðustu önn líka svo að hún þekkir þetta allt mjög vel og hún fór með mig í smá skoðunarferð hérna um skólann áðan. Mjög indæl stelpa J Mér líst bara vel á allt hérna og held að þetta eigi bara eftir að verða mjög gaman.
En allavega, ég ætla að fara eitthvað hérna út á vappið
Góðar stundir
Sigurlaug
5 comments:
Gleður mig að sjá að ferðin hefur gengið vel hjá þér, var hálfpartinn með hjartað í buxunum hérna heima fyrir af ótta við að þetta yrði eitthvað vesen, en nei nei nei, að sjálfsögðu spjarar þú þig alveg. Hlakka til að lesa meira um þetta ævintýri.
kv. Fannar :*
Gott að allt hefur gengið vel hingað til. Ég hef nú þegar prentað út þessa fyrstu bloggfærslu í fimm eintökum þannig að allt heimilisfólkið hér geti lesið hana aftur og aftur fyrir háttinn í kvöld.
ps. Ef þú átt eftir að hitta þjálfara danska karlalandsliðsins í handknattleik á förnum vegi þá bið ég ekki að heilsa honum.
Ég skal reyna að vera dugleg að skrifa hérna á síðuna Fannar minn :* já og meðan ég man, myndin af okkur sómir sér vel hérna á skrifborðinu mínu :)
Og Einar, gaman að vita að þau heima sjái þetta líka...og ég held að ef Ulrik myndi hitta mig og vita að ég væri Íslendingur myndi hann ganga frá mér á stundinni þannig að ég gæti hvort eð er ekki skilað kveðju frá þér, en það var mjög gaman að horfa á leikinn þegar maður var umkringdur Dönum og fúlir Danir að lýsa leiknum ;)
Ooh ég gleymdi vist að skrifa word verification áðan. Var búin að skrifa tvö komment hér.. Oh
En allavega. Naauh vá svalt að herbergisfélaginn þinn sé frá Ástralíu og heiti Lori!
32 kíló?! Vá! Þurftiru eitthvað að borga?
Gott að heyra að allt gangi vel, og ég er alveg smá öfundsjúk. Vona að það verði allavega næstum því jafn gaman hjá mér! ;D
Hérna, ertu í þriggja manna herbergi?
Post a Comment