Monday, August 25, 2008

Hæhó

Já, þá er vika númer tvö rétt byrjuð. Þessi fyrsta vika er búin að vera ótrúlega skemmtileg. Á fimmtudaginn voru ólympíuleikar haldnir hérna í skólanum. Þá voru krakkarnir sem eru í hóp sem kallast Teambuilders búnir að skipuleggja allan daginn. Það byrjaði á því að okkur var skipt í lið og við vorum sjö í liði. Svo þurfti liðið að fara og finna sér búning og þá höfðu The teambuilders sett eitthvað dót í fötu sem við grömsuðum í og mitt lið ákvað að klippa niður blátt efni sem var í fötunni og nota sem hárbönd og einshvers konar mittisbönd/minipils. Svo var auðvita sett stríðsmálning framan í okkur. Þegar liðin voru komin í búning fórum við öll inn í stóra salinn og þá voru ólympíuleikarnir settir þegar Jonas Stölse kom hlaupandi inn með kyndilinn og kveikti ólympíueldinn. Mjög dramatísk athöfn það. Svo þurftum við að keppa í allskonar þrautum. Það var svona þrautabraut búin til úr dýnum og allskonar dóti sem við þurftum að fara í gegn um, með hárkollu á höfðinu og skjalatösku í hendinni. Svo var ein þrautin einskonar boðhlaup. Það var þannig að fyrir framan okkur voru fjórar fötur, ein innihélt hafragraut, önnur jógúrt, sú þriðja sultu og fjórða fatan var tóm. Svo átti fyrsti maðurinn í liðinu að taka upp með höndunum eins mikinn hafragraut og hann gat og hlaupa með hann braut þar sem bæði þurfti að hoppa yfir og fara undir borða. Svo þegar fyrsti maður var kominn í gegn um brautina átti næsti maður að taka við hafragrautnum sem sá fyrst hélt á og fara sömu leið og svona gekk það koll af kolli og þegar síðasti maður var kominn með hafragrautinn í heimahöfn setti hann hann í tómu fötuna. Svona gekk þetta með jógúrtið og sultuna og þetta var bæði keppni í því að vera fyrstur og mark og líka að ná sem mestu af matnum í tómu fötuna, þannig að hún var vigtuð í lokin. Svo var keppni í því að kasta ósoðnu eggi á milli og í hvert sinn sem maður greip eggið átt maður að færa sig eitt skref aftur á bak, þannig að bilið lengdist alltaf á milli þeirra sem voru að kasta. Svo var líka kappát, og ég fékk að taka þátt í því að borða fyrst 6 flöðeboller, svona ekki ósvipaðar kókosbollum bara minni, og strax á eftir átti að borða sex þurrar kexkökur. Bollurnar voru svo sem ekkert mikið mál enda mjög svo bragðgóðar, en kexið var algjör viðbjóður. Ég þornaði svo í munninum og hálsinum að ég gat varla tuggið. En gaman engu að síður. Svo var margt margt annað.

Á föstudaginn voru svo m.a. viðtöl við kennara, þar sem nemendur fóru og snökkuðu við kennara sína. Svo skemmtilega vildi til að mitt viðtal var kl. 15:50 og reiknaði ég það út að ég gæti þá séð leikinn Ísland-Spánn. En viti menn, öll viðtölin fóru fram inn í kennslustofum og svo óskemmtilega vill til að öll sjónvörp skólans eru inn í kennslustofum. Því ákvað ég að fara á www.ruv.is en viti menn, það voru einhverjir tæknilegir örðuleikar og viðgerðir stóðu yfir. Ég varð því að láta mér það nægja að fylgjast með stigaskorinu á mbl.is og gat séð þar hvað markvert gerðist á hverri mínútu. Og ósköp leið tíminn eitthvað hægt þegar maður horfði bara á tölurnar og beið eftir nýjum. En, minn kæri bróðir tók upp leikinn fyrir mig, eða ég ætla rétt að vona það, svo ég get horft á hann um jólin :)

Á laugardeginum vöknuðum við svo rúmlega sjö svona eins og venjulega því við fórum á stöndina. Það tók svona 20-30 mínútur að keyra þangað og svo löbbuðum við smá spöl. Við sáum t.d. vita og hjá vitanum standa nokkur hús en þau sjást ekki lengur af því að það hefur fokið svo mikill sandur á þau, eða ég skildi það þannig alla vega. Svo borðuðum við hádegismat á stöndinni, og ég fékk óvæntan gest í matinn minn, mjög svo bústinn og pattaralegan geitung. Geitungar eru alls staðar. Þessum tiltekna geitungi leist svo ljómandi vel á kartöflusalatið sem ég hafði á disknum mínum að hann ákvað að taka sér bólfestu þar og rölti í mestu makindum fram og aftur yfir það þar til hann sat fastur á einum kartöflubitanum. Sama hvað ég gerði, hann fór ekki af disknum, svo ég greip til þess ráðs að taka kartöflubitann af disknum og leifa geitungnum bara að hafa hann út af fyrir sig. Ég borðaði ekki karftöflusalatið.
Við fórum svo í reiptog og sumir fóru og svömluðu í sjónum. Við komum heim um kl. 14:00 og svo var partý klukkan 18:00. Það var alveg heljarinnar stuð og það sem mér fannst hvað furðulegast var það að það var bar á staðnum, inn í skólanum, og ekki nóg með það heldur voru það kennararnir sem voru að selja áfengið, íþróttakennarar í þokkabót.

Svo vöknuðu 3/4 af íslendingunum hressir í morguns-árið til þess að fylgjast með handboltalandsliðinu og svo verðlaunaafhendingunni. Sunnudagurinn var svo bara mjög rólegur.

Í dag var svona fyrsti venjulegi kennsludagurinn. Við byrjuðum á grunnþjálfun kl. 8:00 og þar var nú heldur betur tekið á því. Svo átti ég að fara í Powersport kl. 10:00 en að þessu sinni vorum við í tíma með erobik krökkunum og tíminn fór allur í teygjuæfingar og slökun eins þversagnarkennt og það kann að hljóma þegar talað er um Powersport. En þetta var mjög þægilegt og maður var allur ferskur og endurnærður eftir tímann. Svo var söngstund eftir hádegi og síðan vorum við í svona Teamwork þ.e.a.s. liðavinnu. Okkur var þá skipt í lið og áttum að leysa hinar ýmsu þrautir.
Svo núna í kvöld var svona stelpukvöld þar sem við stelpurnar hittumst út á basecamp svæðinu, en þar er svona staður fyrir varðeld og þar eru líka tveir stórir klifurstaurar, annar er 8 m og hinn tæpir 16 m held ég. Ég prófaði að príla upp þann minni en ég hafði ekki alveg taugar í að standa upprétt á honum, lét það nægja að hanga í honum efst. En þetta var ótrúlega gaman og pottþétt ekki í síðasta skipti sem égklifra þarna upp. Hver veit nema ég prófi þann stærri líka :)





En já, þá held ég sé búin að segja svona í grófum dráttum frá þessum undanförnum dögum.
Ég bið bara að heilsa ykkur

Sigurlaug

Wednesday, August 20, 2008

Nýtt símanúmer

Hæhó
Ég ætlaði bara að láta vita að ég er búin að fá mér danskt símanúmer, þannig að ég þarf ekki að borga fyrir móttekin símtöl lengur. Nýja númerið er 0045 60 64 24 03
Þar hafiði það

Kveðja til allra

Sigurlaug

Tuesday, August 19, 2008

Strengir

Hæhæ
Ég er í smá pásu núna, búin að borða kvöldmat og er að bíða eftir því að fara fram í kvöldkaffi og söngstund, við erum alltaf syngjandi :)
Ég er með svo mikla strengi og við erum ekki einu sinni byrjuð á mesta púlinu. Það er samt búið að vera svo gaman! Ég er sko núna að fá það endurgreitt að ég skildi aldrei fara í leikskóla. Á sunnudagskvöldið þegar við vorum búin að borða mjög svo ljúffengan mat fórum við í stóra íþróttasalinn og vorum í allskonar leikjum, svona ísbrjótum. Ég er alveg búin að læra þó nokkur nöfn. Það eru alveg nokkrir útlendingar svona eins og ég. Við erum fjórar stelpur frá Íslandi, Brynja, Elín og Hrefna, þannig að ég get allavega talað íslensku svona öðru hverju. Svo eru að ég held tveir strákar frá Ungverjalandi, tveir frá Lettlandi, einn frá Bandaríkjunum, svo er Lori herbergisfélaginn minn frá Ástralíu og svo er von á einni stelpu frá Thailandi að ég held og tveim strákum frá Oman. Svo verðum við útlendingarnir í svona International tímum, að vísu eru Brynja og Hrefna með dönunum og ég og Elín getum fengið að skipta ef við viljum. Ég held bara að ég muni ekki skilja nógu mikið því í þessum tímum eru að koma fyrirlesarar að tala við okkur og þess háttar en í International tímunum t.d fórum við og skoðum í kring um Brönderslev og gerum eitthvað svona skemmtilegt.

Ég er búin að ákveða að láta fólk bara kalla mig Hönnu, en íslensku stelpurnar kalla mig auðvita bara Sigurlaugu. Til að byrja með kynnti ég mig alltaf sem Sigurlaugu en það áttu allir í svo miklum erfiðleikum með að segja það þannig að ég gafst bara upp og segið þeim núna bara að kalla mig Hönnu. Það er mun auðveldara að bera það fram :)

Í gær var okkur skipt í lið og hvert lið átti að búa til leik/keppni og síðan kepptu öll liðin í þessum leikjum. Það var gjjeeðveikt gaman og liðið mitt lenti í 3. sæti af 10 liðum :)

Svo í dag voru kennararnir að hjálpa okkur með að velja íþróttagreinar sem við viljum vera í núna á fyrri önninni, ég verð í fótbolta, teambold og powersport. Á morgun munum við svo fara í kynningar á þessu öllu og ég hlakka ótrúlega mikið til :)

Að lokum ætla ég að setja nokkrar myndir hérna

Njótið vel

Sigurlaug
Strandblaksvöllurinn


Eða nei, myndirnar verða bara tvær að þessu sinni...það er frekar glatað að setja myndir hérna inn á þannig að ég held að ég setji þær bara á myspace-ið mitt: www.myspace.com/sigurlaug1988

Sunday, August 17, 2008

Komin á leiðarenda

Jæja, þá er ég komin til Danmerkur. Ferðin gekk bara nokkuð vel og mér til óvæntrar ánægju var ég samferða Önnu og Simma en þau voru á leiðinni til Svíþjóðar. Það var lagt af stað frá Akureyrarvelli kl. 15:30 en það þurfti reyndar að millilenda í Keflavík til að taka eldsneyti og ná í fleiri ferðalanga. Við stoppuðum því í dágóða stund á Keflavíkurflugvelli en máttum ekkert fara út úr vélinni. Svo lögðum við loksins af stað aftur og lentum í Kaupmannahöfn um 22:30 í 17 stiga hita. Svo þurfti bara að bíða eftir farangrinum eins og gengur og gerist, öllum mínum 32 kílóum og þegar þau voru komin gat ég farið að leita að Mette og aðstoðarkonunni hennar sem ætluðu að hýsa mig þessar tvær nætur áður en ég leggði af stað til Brønderslev. Þegar menntaskólakórinn fór til Danmerkur gisti ég heima hjá Mette. Hún er, að ég held, eina manneskjan sem ég þekki í Kaupmannahöfn og hún er algjörlega búin að bjarga mér hérna á þessu ferðalagi mínu. Mange tak Mette J Við skemmtum okkur mjög vel í gær því við fórum ásamt Louise aðstoðarkonu í Experimentarium sem er svona safn með allskonar skemmtilegum hlutum og þrautum sem maður getur alveg gleymt sér í. Svo um kvöldið höfðu foreldrar Mette boðið vinafólki sínu í grill og það var engin smá veisla, þar sem ég m.a. fékk að smakka apríkósugos, áhugavert nokk. Þau grilluðu svínakjöt, kjúkling og pylsur og í eftirrétt voru pönnukökur og grillaðir bananar. Góð uppskrift af grilluðum banana er: 1 stk. grillaður banani, púðursykur, súkkulaðisósa og slatti af ís ofaná. Nammi namm.

Síðan um kvöldið fórum við á rúntinn, athugið: á rúntinn, ekki að keyra, og ætluðum fyrst á einhvern bar sem Mette vissi um en þegar við komum þangað kom í ljós að þessi bar var víst endastöð Gleðigöngunnar sem haldin hafði verið í Kaupmannahöfn fyrr um daginn. Við ákváðum því að fara bara inn á lítið kaffihús og vorum þar um kvöldið.

Svo var vaknað klukkan 7:00 í morgun því að lestin sem ég átti að fara með átti að leggja af stað klukkan 8:50. Við fórum tímanlega af stað til Hovedbanegården og þau hjálpuðu mér að koma öllum töskunum að rétta vagninum. Svo var bara að kveðja og þjóta af stað til Brønderslev. Lestarferðin var bara mjög fínt en ég verð að segja að lestir eru ekki mjög heppilegar ef maður er með mjög mikið af far-angri. En þetta reddaðist allt og ég komst til Brønderslev á rúmum 5 klukkutímum. Svo þurfti ég að drösla öllum farangrinum niður nokkrar tröppur og það var mjög svo erfitt svo ég neiddist til að fá leigubíl til að skutla mér síðasta spölinn.

Núna er ég svo komin í skólann og er búin að hitta annan herbergisfélagann sem ég mun vera með í vetur. Hún heitir Lori og er frá Ástralíu. Hún var hérna síðustu önn líka svo að hún þekkir þetta allt mjög vel og hún fór með mig í smá skoðunarferð hérna um skólann áðan. Mjög indæl stelpa J Mér líst bara vel á allt hérna og held að þetta eigi bara eftir að verða mjög gaman.

En allavega, ég ætla að fara eitthvað hérna út á vappið

Góðar stundir

Sigurlaug