Halló
Það er alveg að koma helgi.
Í dag hættir sólin að skína á Urðabæ og hún mun ekki láta sjá sig fyrr en í fyrsta lagi 17. febrúar. Ég sagði Lori, ástralska herbergisfélaga mínum, þetta og hún gapti. Um þetta leiti er 30°C þar sem hún býr og það er meira að segja á kaldari hluta Ástralíu.
Það er svo mikil framlenging á sumrinu að vera hérna í Danmörku. Í fyrradag var húsvörðurinn meira að segja að slá grasblettinn hérna fyrir utan gluggann minn!
Ég átti hérna lausa stund og mér til gamans var ég að skoða dagatalið mitt og telja. Ég taldi að það eru...
...70 dagar síðan ég byrjaði í NIH
...72 dagar síðan ég sá fjölskylduna mína
...7 dagar þar til Fannar kemur í heimsókn :D
...13 dagar þar til Arnhildur og Baldvina koma í heimsókn :D
...46 dagar þar til við í Adventure förum til Noregs á skíði
...58 dagar þar til skólinn klárast
...60 dagar til ég kem arkandi inn um forstofudyrnar heima á Urðum og kalla: Halló!!
Núna er fyrsta vikan á seinni önninni að klárast. Á þessari önn verð ég í sundi, handbolta og adventure (ævintýrum). Mér lýst bara rosalega vel á þetta og ég held að þetta verði bara mjög skemmtileg önn.
En það er kominn hádegismatur núna, ég ætla að fara að háma í mig rúgbrauði með síld, nammi namm.
Ég bið bara að heilsa öllum
Hafið það ævinlega sem allra best
Sigurlaug
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 comments:
já sætust, aðeins sjö dagar þanngað til ég kem, að sjálfsögðu er hitt líka tilhlökkunarefni, fara á skíði í noregi, fá Baldvinu og Arnhildi í heimsókn. En ég hlakka samt líka til að fá að sjá þig um jólinn, og helling velling að fá að sjá þig núna næsta fimmtudag.
Haltu áfram að skemmta þér vel. :*
Gaman að heyra hvernig gengur hjá þér.Hvert á að fara á skíði í norge.Yndislegt að vera þar, ég bjó jú í norge áður en ég flutti til Dalvíkur.Stelpurnar þeirra Gumma og Hófý eru hjá okkur,þau eru á árshátið hjá Húsasmiðjuni.Allir byðja að heilsa.Kveðja frá snjóakistunni.Hófý,Tryggvi,Skúli Lórenz,Sonja Kristín og Selma Rut
alltaf jafn gaman að lesa. og hehehe vampírumyndirnar af þér eru alveg killer, hehe, þær eru svo flottar, ég brosti svo mikið:)
haltu áfram að skemmta þér, hlakka svo til að sjá þig í desember:D
Elsku ættingjarnir mínir á Dalvík, mikið er gaman að heyra frá ykkur :) Ég satt að segja veit ekki alveg hvert við förum á skíði, en ég mun ábyggilega komast að því von bráðar. Ég bið að heilsa ykkur öllum :)
hæhæ...
það er geggjað stutt í að við komum!
ég er búin að panta flug suður.
ég, já ég, er lasin... ég er heima með hita og hausverk :(
heyrumst
kv. Baldvina
Já það er ótrúlega stutt í að þið komið, vá hvað ég hlakka til að sjá ykkur. Það er eins gott að þú verðir orðin frísk þegar þið leggið af stað!
Post a Comment